Pavel: Craion væri heimsklassa línumaður í handbolta Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. apríl 2016 16:45 Michael Craion í fyrsta leiknum á móti Haukum. Vísir/Ernir
Michael Craion, miðherji KR-inga, hefur farið á kostum með KR-liðinu í vetur og það er kannski ekkert skrýtið að leikstjórnandi liðsins sé ánægður með sinn mann. Michael Craion var með 19 stig, 12 fráköst og 5 varin skot í 30 stiga sigri KR á Haukum í gær í fyrsta leik liðanna í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta karla. Pavel Ermolinskij átti ellefu stoðsendingar í leiknum þar af tvær þeirra á Michael Craion en bandaríski miðherjinn skoraði alls níu körfur inn í teig í leiknum. Pavel Ermolinskij fór á Twitter eftir leikinn og hrósaði Michael Craion með öðruvísi hætti. „Ef Craion hefði æft handbolta væri hann heimsklassa línumaður? Byggður í þetta sport," skrifaði Pavel Ermolinskij á Twitter og það er hægt að taka undir það. Pavel Ermolinskij hefur verið duglegur að finna Michael Craion og þá sérstaklega eftir vagg og veltu eða þegar Craion setur hindrun fyrir Pavel og rúllar síðan í átt að körfunni. Það eru fá lið sem ná að leysa það þegar báðir er í rétta gírnum og jafnframt auðvelt að sjá Craion fyrir sér í hlutverki króatíska línumannsins Igor Vori hvort sem er í vörn eða sókn. Michael Craion hefur skorað 22,5 stig og tekið 11,1 frákast að meðaltali í leik á Íslandsmótinu í vetur en í úrslitakeppninni er hann með 21,1 stig og 10,0 fráköst í leik.Ef Craion hefði æft handbolta væri hann heimsklassa línumaður? Byggður í þetta sport.— Pavel Ermolinski (@pavelino15) April 19, 2016
Dominos-deild karla Mest lesið Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Lögreglumenn dulbjuggu sig sem lukkudýr HM fyrir fíkniefnaaðgerð Fótbolti Beckham fékk sína stjörnu á götuna frægu í Hollywood Fótbolti „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Michael Oliver getur ekki dæmt fyrsta leikinn sinn á HM Fótbolti Siggi Raggi með NSÍ á toppnum Fótbolti Katarmenn stálu stiginu með marki í uppbótartíma Fótbolti Fleiri fréttir Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Sjá meira