Hörður Axel samdi við Keflavík til fjögurra ára Tómas Þór Þórðarson skrifar 9. maí 2016 21:41 Hörður Axel og Ingvi Þór Hákonarson, formaður KKD Keflavíkur, handsala samninginn í kvöld. mynd/keflavík
Keflavík fékk í kvöld gríðarlegan liðsstyrk fyrir átökin í Dominos-deild karla í körfubolta á næstu leiktíð þegar Hörður Axel Vilhjálmsson skrifaði undir fjögurra ára samning við félagið. Þetta kemur fram á heimasíðu Keflavíkur en þessi 27 ára gamli landsliðsmaður er einn allra besti körfuboltamaður þjóðarinnar og hefur verið í atvinnumennsku undanfarin fimm ár. Klásúla er í samningi Harðar Axel sem segir að ef „ákjósanlegt tilboð frá erlendu liði berst fyrir 1. október þá mun körfuknattleiksdeild Keflavíkur ekki standa í vegi fyrir því.“ Hörður, sem er uppalinn Fjölnismaður, spilaði með Njarðvík og Keflavík í efstu deild áður en hann fór til Mitteldeutscher í Þýskalandi árið 2011. Þar stóð hann sig vel og fékk samning hjá CB Valladolid í efstu deildinni á Spáni sem er sterkasta deild Evrópu. Hann hefur undanfarin misseri spilað með Aries Trikala í Grikklandi og CEZ Nymburk í Tékklandi en hefur nú ákveðið að snúa heim og leik á ný með Keflavík. Hörður Axel er fastamaður í íslenska landsliðinu og spilaði stórvel á Evrópumótinu á síðasta ári. Þegar hann spilaði síðast hér heima með Keflavík fyrir fimm árum var hann stiga- og stoðsendingahæsti leikmaður liðsins með 16,5 stig að meðaltali í leik og 7,3 stoðsendingar. Keflavík hafnaði í þriðja sæti Dominos-deildarinnar á síðustu leiktíð en féll úr leik í átta liða úrslitum Íslandsmótsins eftir 3-1 tap gegn Tindastóli. Það er ljóst að Keflvíkingar eru stórhuga með að fá Hörð Axel til liðs við sig og ákveðin skilaboð um þreytu á árangursleysi. Þetta mikla körfuboltastórveldi varð síðast meistari fyrir átta árum síðan og spilaði síðast til úrslita 2010 en tapaði. Hörður Axel var með í liðinu sem tapaði fyrir Snæfelli í oddaleik 2010.
Dominos-deild karla Mest lesið „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Lögreglumenn dulbjuggu sig sem lukkudýr HM fyrir fíkniefnaaðgerð Fótbolti Michael Oliver getur ekki dæmt fyrsta leikinn sinn á HM Fótbolti Beckham fékk sína stjörnu á götuna frægu í Hollywood Fótbolti Siggi Raggi með NSÍ á toppnum Fótbolti Katarmenn stálu stiginu með marki í uppbótartíma Fótbolti Fleiri fréttir Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Sjá meira