Lífið

Erlendir blaðamenn ánægðir með Gretu

Samúel Karl Ólason skrifar
Mynd/Andres Putting (EBU)
Erlendir blaðamenn í Stokkhólmi eru hrifnir af atriði Íslendinga. Starfsmenn framleiðslufyrirtækisins Silent ræddu við marga þeirra, en langflestir þeirra sögðust ánægðir með Gretu og atriðið.

„Í hvert sinn sem ég heyri lagið verð ég hrifnari af því,“ segir Hassan frá Bretlandi.

Meðal þess sem blaðamennirnir segja er að atriðið sé mjög flott og þeir vonist til þess að hún komist í úrslitin. Þá segja þeir einnig að skilaboð lagsins sé gott.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.