Ólafur Ólafsson heim í Grindavík Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. júní 2016 14:19 Ólafur Ólafsson. Vísir/Valli
Grindvíkingar eru búnir að fá mikinn liðstyrk í körfuboltanum því Ólafur Ólafsson er kominn heim frá Frakklandi og mun spila með Grindavíkurliðinu í Domino´s deildinni í körfubolta næsta vetur. Heimasíða Grindavíkur segir frá þessum gleðitíðundum fyrir Grindvíkinga en Ólafur snýr nú aftur til Grindavíkur eftir eins árs dvöl erlendis. Ólafur spilaði með St. Clement í NM2 deildinni í Frakklandi síðasta tímabilið og var að skora 14 stig að meðaltali í leik. „Grindvíkingar höfðu samband við mig og buðu mér að koma heim og spila. Við konan fórum vel og vandlega yfir þetta og spjölluðum lengi áður en ákvörðun var tekin. Konan komst svo inn í Háskólanám sem spilar stórt inní ákvörðun mína sem og að bræður mínir," sagði Ólafur í viðtali við karfan.is en þjálfari Grindavíkurliðsins er Jóhann Þór Ólafsson og fyrirliði liðsins er Þorleifur Ólafsson. „Jóhann er náttúrlega að þjálfa og hefur kennt mér gríðarlega mikið og ég sé fyrir mér að hann eigi eftir að halda því áfram. Í kjölfarið sagðist miðju bróðirinn (Þorleifur Ólafsson) taka sitt síðasta tímabil með mér. Þeir eru búnir að hjálpa mér rosalega mikið í gegnum minn feril og ég ákvað því að koma heim og spila bæði fyrir og með þeim." sagði Ólafur við karfan.is. Grindvíkingar höfðu þegar misst tvo lykilmenn frá því á síðasta tímabili en Jón Axel Guðmundsson er farin út háskólanám í Bandaríkjunum og Jóhann Árni Ólafsson ætlar að fara heim í Njarðvík. Ólafur lék síðast með Grindvíkingum tímabilið 2014-15 en hann var þá með 14,9 stig og 7,2 fráköst að meðaltali í leik. Hann varð Íslandsmeistari með Grindavík 2012 og 2013 og bikarmeistari 2014.
Dominos-deild karla Mest lesið Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Beckham fékk sína stjörnu á götuna frægu í Hollywood Fótbolti Lögreglumenn dulbjuggu sig sem lukkudýr HM fyrir fíkniefnaaðgerð Fótbolti Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Siggi Raggi með NSÍ á toppnum Fótbolti Michael Oliver getur ekki dæmt fyrsta leikinn sinn á HM Fótbolti Katarmenn stálu stiginu með marki í uppbótartíma Fótbolti „Ennþá er boltinn ekki að fara inn í markið“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Sjá meira