Dagur: Þetta var mjög flott Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. ágúst 2016 19:51 Dagur Sigurðsson, þjálfari Þýskalands. Vísir/Getty
Dagur Sigurðsson er búinn að koma Evrópumeistaraliði Þýskalands í undaúrslit á Ólympíuleikunum í Ríó en Þjóðverjar unnu tólf marka sigur á Katar, 34-22, í átta liða úrslitum keppninnar í kvöld. Það var nóg að gera hjá Degi eftir leikinn enda kepptust þýsku fjölmiðlarnir við að ná viðtali við íslenska þjálfarann. Eftir allar þýsku spurningarnar gaf hann sér tíma til að svara nokkrum á íslensku líka. „Þetta var mjög flott. Við náðum frábærum varnarleik og góðri markvörslu," sagði Dagur og hann nýtti sér það vel að lið Katar vill ekki hraðan leik. „Við vissum að þeir myndu ekki keyra upp hraðann. Við leyfðum okkur því tvær skiptingar og vorum því með trukkana klára í varnarleikinn og svo voru ungu spræku strákarnir í sókninni sem þeir réðu illa við," sagði Dagur. „Í seinni hálfleik náðum við að keyra svolítið á þá og svo gáfust þeir upp. Það verður bara að segjast eins og er að þeir gáfust upp eftir tíu mínútur í seinni hálfleik," sagði Dagur. „Það var óvænt að þetta yrði svona stórt," sagði Dagur. Þýska liðið mætir Frökkum í undanúrslitum en Frakkarnir hafa unnið gull á síðustu tveimur Ólympíuleikum. Dagur getur verið ánægður með sína menn en þýska liðið hefur unnið alla leiki sína fyrir utan þann á móti heimamönnum í Brasilíu. Þýska liðið svaraði því með tveimur sigrum og tryggði sér sigur í riðlinum.
Íslenski handboltinn Ólympíuleikar Ólympíuleikar 2016 í Ríó Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Svona missti Aron markið sögulega Fótbolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Er skrefareglan dauð í NBA? Körfubolti Fleiri fréttir Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað Sjá meira