
Nú er sá árstími runninn upp sem fólk skellir sér í berjamó með tínur og ílát. Margir eiga sína leynistaði og við gefum enga slíka upp hér á þessari síðu. Nú verður hver að bjarga sér!
Það hefur lengi tíðkast á Íslandi að nýta berin, enda voru þau einu ávextirnir sem aðgengilegir voru almenningi og á síðsumrum varð berjaskyrið þjóðarréttur.
Berjaskyrið er enn í fullu gildi, sultur og saft en margs konar nýting bláberja og krækiberja hefur bæst við og nú verða til kökur, bökur og búst með berjum.
Ber eru notuð sem krydd með kjöti og bragðefni í drykki, jafnvel áfenga drykki eins og mojito.
Eitt af því góða við bláberin er að þau þola vel frystingu og tapa ekki næringarefnum við geymsluna.
Meðal þeirra sem kunna vel að meta berin er meistarabakarinn Jói Fel.
„Við tínum alltaf mikið af berjum, sultum fullt, bökum og alls konar,“ segir hann kátur og varð fúslega við beiðni um uppskrift að góðri bláberjaköku. Þar koma eðalhráefni eins og rjómaostur og hvítt súkkulaði líka við sögu.
Bláberjaostakaka Jóa Fel
Botn:
80 g smjör
170 g hafrakex
1 tsk. sykur
Bræðið smjörið og takið af hitanum. Myljið kexið og blandið svo öllu saman. Setjið plast eða smjörpappír á kantinn og þrýstið botninum í formið og aðeins upp á kanta. Kælið.
Fylling:
3 stk. matarlím
2 tsk. vanilludropar
300 g rjómaostur
50 g sykur
100 g hvítt súkkulaði
2 dl þeyttur rjómi
Matarlímið er sett í bleyti. Bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði og takið af hitanum. Hrærið rjómaostinn með sykri þar til hann verður mjúkur. Leysið matarlímið upp við vægan hita með vanillu og setjið saman við rjómaostinn ásamt súkkulaðinu.
Léttþeytið rjómann og blandið saman við með sleikju. Setjið í form og látið standa í fjórar til fimm klukkustundir eða yfir nótt.
Ofan á kökuna
250 g bláber
2 msk. sykur
1 msk. sítrónusafi
Setjið allt í matvinnsluvél og vinnið en bara mjög stutt. Einnig má stappa berin með gaffli ef fólk vill. Setjið berin yfir kökuna og dreifið líka nokkrum heilum berjum yfir hana. Gott er að kæla hana aftur í um það bil klukkustund áður en hún er borin fram.
Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 20. ágúst 2016.

Bláberjamojito
Svavar Helgi Ernuson barþjónn á Sushisamba gaf okkur þessa dásemdaruppskrift að bláberjamojito.
1 matskeið hrásykur
5 lime-sneiðar
5 myntulauf
4 bláber
3 cl romm
2 cl Cartoon bláberjalíkjör
Sódavatn
Klaki
Merjið hrásykur, lime, myntu og bláber saman í glas, helst með litlu mortéli. Setjið rommið og bláberjalíkjörinn út í.
Fyllið glasið með muldum ís. Hrærið vel saman og toppið með sódavatni.
Skreytið með myntuvendi, lime-sneið og nokkrum bláberjum.