Hermann: Mér er drullusama Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar 11. september 2016 20:10 Hermann á hliðarlínunni í dag. vísir/ernir „
Þetta eru frábær þrjú stig, lífsnauðsynlega. Við vitum það allir og vissum fyrir leikinn,“ sagði Hermann Hreiðarsson, þjálfari Fylkis, eftir 2-1 sigurinn á Víkingi Ólafsvík í kvöld. „Þetta er einn af mörgum úrslitaleikjum og var sérstaklega mikilvægur. Við höfum í tíu síðustu leikjum verði í úrslitaleikjum. Þetta snérist um að ná í þessi þrjú stig, hvernig sem það væri,“ sagði Hermann. Fylkir var yfir í hálfleik þrátt fyrir að hafa oft leikið betur í sumar en liðið gerði fyrstu 45 mínúturnar í kvöld. „Við skorum snemma. Við spiluðum ekki frábæran fótbolta í fyrri hálfleik en við verjumst vel og refsum vel. Við náðum ekki að halda í boltann eins og við vildum en ég er til í að spila frekar lélega leiki og vinna, það er kominn tími á það. „Við erum búnir að vera fínir í mörgum leikjum í sumar og ekki fá stig. Að fá stigin skiptir öllu.“ Fylkir lék mun betur í seinni hálfleik og átti mjög góðan kafla sem annað markið kemur upp úr. „Í seinni hálfleik róuðum við okkur niður á boltann og það kom aðeins meiri hreyfing á liðið. Það var lykilatriði. Það lá á okkur eftir markið í fyrri hálfleik,“ sagði Hermann. Fylkir er nú aðeins einum leik frá því að koma sér úr fallsæti. Staða sem liðið hefur ekki verið í síðan mjög snemma móts. „Við höfum alltaf haldið trúnni og stemningunni innanbúðar en það er búið að afskrifa okkur held ég 22 í sumar. „Þetta er ekki búið, það er fjórir leikir eftir en þetta var risa skref,“ sagði Hermann sem sagði Fylki hafa átt inni heppni frá því fyrr í sumar undir lok leiksins þegar Víkingur virtist eiga að fá vítaspyrnu. „Þetta var ekki einu sinni aukaspyrna þannig að það er aukaatriði,“ sagði Hermann um atvikið þegar Pape fékk aukaspyrnu þegar brotið virtist vera innan teigs. Hann viðurkenndi að boltinn fór í höndina á Ásgeiri Berki innan teigs undir lokin aftur á móti. „Hann fer örugglega í höndina á honum en það er ekki alltaf hendi víti. Hann fer í höndina en svo er það matsatriði. Við höfum átt fullt af þeim í sumar þannig að mér er alveg drullusama,“ sagði Hermann.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Segir félagið í skítnum Enski boltinn Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Fyrstur síðan David Robinson var og hét Körfubolti Fleiri fréttir Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Sjá meira