Bandarískur körfuboltamaður sem ætlaði að spila með Keflavík lést á æfingu Tómas Þór Þórðarson skrifar 11. október 2016 10:30 Cameron Moore í leik með New York Knicks í sumardeild NBA. vísir/afp
Cameron Moore, 25 ára gamall bandarískur körfuboltamaður, lést síðastliðinn þriðjudag á fyrstu æfingu sinni með makedónska liðinu AV Ohrid. Hann var nálægt því að spila með Keflavík í Dominos-deildinni í vetur. Moore kom seint á mánudaginn í síðustu viku til Makedóníu frá Feneyjum á Ítalíu og fór á sína fyrstu æfingu daginn eftir, en hann átti bara eftir að skrifa undir samning við liðið þegar hann féll skyndilega frá á fyrstu æfingunni. Bandaríkjamaðurinn var greindur með of stórt hjarta þegar hann spilaði nokkra leiki í NBA D-League á síðasta ári. Ivo Markoski, talsmaður makedónska liðsins, greindi frá þessu í viðtali við AP. „Þetta er harmleikur. Við fengum ekki einu sinni tíma til að kynnast honum almennilega. Hann var í Ohrid í 24 tíma. Við leyfðum honum að hvílast eftir ferðalagið en harmleikurinn átti sér stað á fyrstu æfingunni hans,“ sagði Markoski.Our prayers and condolences to Cameron Moore and his family a great player and more importantly a great person ..RIP Cameron pic.twitter.com/el9kfhac1P — Team AV Ohrid (@AVOHRID) October 5, 2016 Moore var búinn að gera munnlegt samkomulag við makedónska liðið og var að byrja í læknisskoðun þegar hann féll frá. Það átti eftir að skrifa undir alla formlega pappíra en það átti að gerast eftir læknisskoðunina. Moore, sem spilaði menntaskólabolta í San Antonio og var kraftframherji hjá Alabama-Birmingham háskólanum í Bandaríkjunum, var í viðræðum við Keflavík í Dominos-deildinni áður en hann fékk tilboðið frá makedónska liðinu og stökk frekar á það. Þetta hefur Vísir fengið staðfest. Keflavík fékk í staðinn Amin Stevens sem skoraði 33 stig og tók 21 frákast í 88-82 sigri á Njarðvík í Ljónagryfjunni í fyrstu umferð Dominos-deildar karla. Cameron Moore spilaði á Ítalíu og þróunardeild NBA áður en hann fékk samninginn í Makedóníu. Vinir hans sem hafa tjáð sig um dauðsfallið segja hann hafa verið frábæran strák sem féll frá alltof snemma.
Dominos-deild karla Mest lesið „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Körfubolti Michael Oliver getur ekki dæmt fyrsta leikinn sinn á HM Fótbolti Lögreglumenn dulbjuggu sig sem lukkudýr HM fyrir fíkniefnaaðgerð Fótbolti 36 ára fyrrum NFL-stjarna látin Sport Beckham fékk sína stjörnu á götuna frægu í Hollywood Fótbolti Fleiri fréttir Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Sjá meira