Martin skýtur aðeins á liðsfélaga sína úr landsliðinu á Twitter Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. október 2016 14:00 Pavel, Martin og Jón Arnór. Vísir/Stefán
KR-ingar eru með fullt hús á toppi Domino´s deildar karla í körfubolta eftir þrjá sannfærandi sigra í fyrstu þremur umferðunum. KR-liðið vann 25 stiga sigur á Grindavík í gær eftir að hafa unnið Skallagrím og Tindastól í leikjunum á undan. Þessi þrjú lið hafa síðan samanlagt unnið 5 af 6 leikjum sínum fyrir utan leikinn við KR. Gott gengi KR-liðsins hefur vakið athygli enda er liðið að spila án landsliðsmannanna Jóns Arnórs Stefánssonar og Pavels Ermolinskij. KR-ingurinn Martin Hermannsson er núna á sínu fyrsta tímabili sem atvinnumaður en hann leikur með franska liðinu Etoile Charleville-Mezieres og hefur byrjað leiktíðina mjög vel. Martin Hermannsson var með 26 stig og 3 stoðsendingar í fyrstu umferðinni. Martin fylgist engu að síður vel með sínum mönnum í KR-liðinu þrátt fyrir að vera búsettur í Norður-Frakklandi og hann datt inn á Twitter í gær á meðan KR-liðið var að fara illa með Grindvíkinga. Martin var einmitt valinn besti leikmaður lokaúrslitanna þegar KR vann Grindavík í úrslitaeinvíginu og tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn 2014. Martin skýtur aðeins á liðsfélaga sína úr landsliðinu á Twitter en það má líka líta á þessa færslu hans sem mikið hrós til hinna í liðinu sem hafa spilað svo vel án sinna stærstu stjarna. „Pavel og Jón who?,“ spurði Martin á Twitter í gærkvöldi. Það að KR sé að vinna svona sannfærandi sigra án þeirra Jóns Arnórs Stefánssonar og Pavels Ermolinskij er væntanlega það sem mótherjar þeirra hræðast mest.Pavel og Jón who ? #KRGRI— Martin Hermannsson (@hermannsson15) October 20, 2016
Dominos-deild karla Mest lesið Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Beckham fékk sína stjörnu á götuna frægu í Hollywood Fótbolti Lögreglumenn dulbjuggu sig sem lukkudýr HM fyrir fíkniefnaaðgerð Fótbolti Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Siggi Raggi með NSÍ á toppnum Fótbolti Michael Oliver getur ekki dæmt fyrsta leikinn sinn á HM Fótbolti Katarmenn stálu stiginu með marki í uppbótartíma Fótbolti „Ennþá er boltinn ekki að fara inn í markið“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Sjá meira