Mesta sem Logi hefur skorað í deildarleik í þrjú ár Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. nóvember 2016 12:30 Logi Gunnarsson. Vísir/Daníel
Logi Gunnarsson fór á kostum í sigri Njarðvíkur á Haukum í fyrsta leik sjöundu umferðar Domino´s deildar karla í körfubolta í Ljónagryfjunni í gærkvöldi. Logi hitti úr 11 af 18 skotum sínum setti niður sex þriggja stiga skot og endaði með 34 stig á 39 mínútum. Logi var stigahæsti maður vallarins þótt að hann væri að spila á móti stigakóngi síðasta tímabils, Sherrod Nigel Wright, sem spilar nú með Haukum. Logi er orðinn 35 ára gamall en það bendir ekkert til þess að það sé að hægjast á þessum frábæra leikmanni. Einhverjir gætu bent á það að hann sé í Eurobasket-formi og að þar fari leikmaður staðráðinn að vera klár í slaginn í Finnlandi næsta haust. Logi var „bara“ 32 ára gamall þegar hann braut 30 stiga múrinn síðast í Domino´s deildinni en svo skemmtilega vill til að það var líka í leik á móti Haukum. 34 stigin hans Loga í gær var það mesta sem hann hefur skorað í leik í Domino´s deildinni síðan að hann skoraði 41 stig í 105-83 sigri á Haukum 22. nóvember 2013. Logi var með sjö þrista í þeim leik. Þetta er líka miklu meira en Logi hefur verið að ná mest í einum leik undanfarin tímabil. Logi skoraði mest 21 stig í deildarleik tímabilið 2014-15 og hann var mest með 23 stig í deildarleik á síðasta tímabili. Þetta var fjórði tuttugu stiga leikur Loga í fyrstu sjö umferðunum en hann var „bara“ með þrjá tuttugu stiga leiki á Íslandsmótinu í fyrra og þá teljum við úrslitakeppnina líka með. Það er mikil ábyrgð á herðum Loga í Njarðvík í vetur og mikilvægi hans sést vel í tölfræðinni. Hann er að skora 23,3 stig að meðaltali í þremur sigurleikjum liðsins en „aðeins“ 16,3 stig í leik í tapleikjunum fjórum. Þriggja stiga nýtingin fer líka úr 48 prósentum niður í 38 prósent og stoðsendingarnar úr 3,3 niður í 0,5.
Dominos-deild karla Mest lesið „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Lögreglumenn dulbjuggu sig sem lukkudýr HM fyrir fíkniefnaaðgerð Fótbolti Michael Oliver getur ekki dæmt fyrsta leikinn sinn á HM Fótbolti 36 ára fyrrum NFL-stjarna látin Sport Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Körfubolti Beckham fékk sína stjörnu á götuna frægu í Hollywood Fótbolti Fleiri fréttir Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Sjá meira