Nigel Farage sagður íhuga flutninga til Bandaríkjanna Birgir Olgeirsson skrifar 24. nóvember 2016 17:59 Nigel Farage. Vísir/EPA
Nigel Farage, leiðtogi breska Sjálfstæðisflokksins, er sagður íhuga flutninga til Bandaríkjanna. Þetta kemur fram í frétt breska dagblaðsins The Times en þar er Farage og eiginkona hans Kirsten sögð lengi hafa haft áhuga á því að flytja til Bandaríkjanna en ekki látið slag standa því þau vildu ekki yfirgefa fjölskyldu sína á Bretlandseyjum. Í frétt Times kemur hins vegar fram að Farage hafi fengið mikla athygli eftir að Bretar ákváðu í þjóðaratkvæðagreiðslu að yfirgefa Evrópusambandið og sú athygli hafi ekki verið jákvæð yfir það heila. Hann telur sig því geta fengið meiri frið í Bandaríkjunum. Farage talaði harðast fyrir því að Bretar myndu yfirgefa Evrópusambandið en þessar fréttir berast eftir að hinn nýkjörni forseti Bandaríkjanna, Donald Trump, lýsti því yfir að Farage yrði frábær sendiherra Breta í Bandaríkjunum. Talsmaður breska forsætisráðuneytisins sagði í kjölfar þeirrar yfirlýsingar Trumps að Bretar hafi nú þegar frábæran sendiherra í Bandaríkjunum. Farage fór og hitti Trump í New York skömmu eftir að Trump hafði sigrað í forsetakosningunum. Voru þeir myndaðir skælbrosandi saman í Trump-turninum við það tilefni.
Donald Trump Tengdar fréttir Nigel Farage fyrsti breski stjórnmálamaðurinn sem hittir Trump eftir kosningarnar „Til allrar hamingju eru við að nálgast endalok Bandaríkjaforseta sem hafði óbeit á Bretlandi.“ 12. nóvember 2016 23:28 Mest lesið Snerti samstarfskonu á ósæmilegan hátt Innlent Baunað á Jónas Má þvert á flokka Innlent Vitnisburðir: „Sannleikurinn er lyginni líkastur“ Innlent Kristín fyrsti sýslumaðurinn fyrir allt landið Innlent Hætta við skólaakstur úr Suðurhlíðum þremur dögum fyrir skólabyrjun Innlent Heyrist í stelpunum þegar vatnið fer upp á miðja síðu Innlent Viðurkennir að opinber gjöld hefðu getað hækkað minna Innlent Erlendir sérfræðingar meta fýsileika þess að sækja líkamsleifar Lúðvíks Innlent Leysa upp nýja drónahersveit sem átti að læra af Úkraínumönnum Erlent Nord Stream skemmdarverkin: Handtekni ráðgefandi við gerð Hollywood-myndar um málið Erlent Fleiri fréttir Gerðu tvöfalda árás á verslunarmiðstöð fjarri víglínunni Fundu rússneskt vopnabúr í skógi fyrir utan Berlín Auka fjárútlát til varnarmála um tæpan fimmtung Getur „D-dagur“ Trumps gegn Íran skilað árangri? Réðst á grunnskólanemendur með sverði Skipstjóri sem sigldi næstum á hús fær fangelsisdóm Leysa upp nýja drónahersveit sem átti að læra af Úkraínumönnum Búast við fordæmalausum El niño næsta árið Nord Stream skemmdarverkin: Handtekni ráðgefandi við gerð Hollywood-myndar um málið Fimm ríki fordæma nýjar landtökubyggðir á Vesturbakkanum Stillir sér upp með gálga og skreytti afmæliskökuna snöru Handtekinn fyrir annan glæp en ekki vegna hvarfs Anne-Elisabeth Sjóræningjar tóku tyrkneskt hergagnaskip Rúmenar grönduðu drónabát nærri borpalli Hælisleitendum kennt að það sé bannað að berja konur og nauðga Hver er „mennski prentari“ Trumps? „Þú ert það eina sem skiptir mig máli“ Bílasali gerður að prinsi eftir faðernispróf Hætta við að bjarga gammablossasjónauka Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Ný meðferð gegn sortuæxlum lofar góðu Hópur tengdur rétttrúnaðarkirkjunni reyndi að komast til áhrifa í Danska þjóðarflokkinum Hótar þeim hörmungum sem eiga í viðskiptum við Íran Ísraelsher viðurkennir að hafa skotið fimm ára stúlku Kærastinn var á staðnum Telur sig geta sjarmað kjarnorkuvopnin af Kim, aftur Lentu geimflaug í fyrsta sinn Taka snúning á risasvartholi með hjálp skruggufljótrar stjörnu Nýtt spillingarmál skekur Kænugarð Kafari handtekinn vegna Nord Stream-skemmdarverkanna Fatlaður maður lést eftir að lögregla skaut hann með rafbyssu Sjá meira
Nigel Farage fyrsti breski stjórnmálamaðurinn sem hittir Trump eftir kosningarnar „Til allrar hamingju eru við að nálgast endalok Bandaríkjaforseta sem hafði óbeit á Bretlandi.“ 12. nóvember 2016 23:28