Hallbera til Djurgården Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. desember 2016 10:15 Hallbera Guðný Gísladóttir. Vísir/Anton
Íslenski landsliðsbakvörðurinn Hallbera Guðný Gísladóttir spilar í sænsku úrvalsdeildinni á næsta tímabili en hún verður liðsfélagi markvarðarins Guðbjargar Gunnarsdóttur hjá Djurgården í Stokkhólmi. Á stuðningsmannavef Blika kemur fram að Knattspyrnudeild Breiðabliks og Djurgården í Svíþjóð hafa komist að samkomulagi um vistaskipti Hallberu Guðnýjar Gísladóttur. Hallbera bætist nú í þann stóra hóp af knattspyrnukonum og körlum sem halda í atvinnumennskuna frá Breiðablik. Þetta er mikill missir fyrir vörn kvennalið Breiðabliks en liðið hafði áður missti Málfríði Ernu Sigurðardóttur í Val. Besta vörn Pepsi-deildar kvenna undanfarin tvö tímabil hefur því misst tvo af fjórum byrjunarliðsleikmönnum sínum. Hallbera skoraði tvö mörk í átján leikjum með Breiðabliki í Pepsi-deild kvenna síðasta sumar en átti einnig sjö stoðsendingar og var ein af þeim sem lagði upp flest mörk í deildinni. Hallbera var að klára sitt annað tímabil með Blikum og varð Íslandsmeistari 2015 og bikarmeistari 2016. Hún hafði áður orðið fjórum sinnum Íslandsmeistari með Val. Hallbera, sem er þrítug, hefur alls leikið 57 leiki með Breiðablik og skorað í þeim leikjum 2 mörk. Hún hefur verið lykilleikmaður liðsins síðastliðin tvö tímabil og var m.a. valin besti leikmaður kvennaliðsins á lokahófi félagsins í haust.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Blóðbað í Köben: „Þetta var helvítis bras“ Sport Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Enski boltinn Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Fótbolti Draumurinn ekki dáinn hjá Bergrós Sport Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein Enski boltinn Ver val á meintum kynferðisbrotamanni Fótbolti Fékk ekki að ferðast með landsliðinu til Bandaríkjanna Fótbolti Svíar tala um valdaskipti í skandinavískum íþróttum Fótbolti Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Körfubolti Bodö/Glimt græddi yfir sex milljarða á Evrópuævintýrinu Fótbolti Fleiri fréttir Þróttarar með mikilvægan sigur á Grindvíkingum Eini grasleikurinn kom í veg fyrir markamet Plataði líka myndatökumanninn upp úr skónum Emilsþruma, þrenna, fjórtán ára með stoðsendingu og markaveislur út um allt Kjánaleg hegðun og stælar sem verðskuldi rautt spjald „Eins gott að ég setti ekki Óskar á bekkinn“ „Fúlt að fara með þennan skell inn í hléið“ Afturelding á toppinn eftir stórsigur á Fylki Umfjöllun og viðtöl: KR - KA 5-3 | Markaveisla á Meistaravöllum Uppgjörið: Valur - Víkingur 1-5 | Sakbitinn Óskar lék við hvurn sinn fingur í glæsilegum sigri Víkings „Engan bilbug á okkur að finna“ Umfjöllun: Þór - Stjarnan 1-3 | Lífsnauðsynlegur sigur Garðbæinga „Ákvað að kontra hann í samúel“ Gerði sínu gamla liði mikinn grikk Leik lokið: ÍBV – Keflavík 6-1 | Flugeldasýning í fyrsta sigri Eyjamanna Grótta í toppbaráttu, Ægir vann aftur og Vestri fagnaði í Breiðholti Öll mörkin: Sjáðu þrennu varamannsins og sturlunina á Akureyri Þór/KA - Víkingur 4-6 | Víkingur Reykjavík á sigurbraut Óskar Smári: „ Ánægður með varnarleikinn, stigin og úrslitin“ Uppgjörið: FH - Fram 6-2 | FH-liðið hrökk í gang í seinni hálfleik með Niu í broddi fylkingar Sjö marka veisla og Skagasigur gegn lánlausum FH-ingum Gri/Nja - Breiðablik 0-5 | Blikar refsuðu heimakonum grimmilega Stjarnan - ÍBV 2-0 | Garðbæingar á sigurbraut „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ „Allir tala um hvað ég er gamall“ Uppgjör: FH - ÍA 0-1 | ÍA sótti sigur í Kaplakrika Fram - Breiðablik 4-3 | Fara fljúgandi í landsleikjahléið Valur - Þróttur 0-1|Sigra manni færri á útivelli Óskar Hrafn framlengir í Vesturbæ Sjá meira
Uppgjörið: Valur - Víkingur 1-5 | Sakbitinn Óskar lék við hvurn sinn fingur í glæsilegum sigri Víkings