Fimmti sigur Svía í jafnmörgum leikjum undir stjórn Kristjáns Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 9. janúar 2017 21:45 Jesper Konradsson brýst í gegnum vörn Síle. vísir/epa
Lærisveinar Kristjáns Andréssonar í sænska karlalandsliðinu í handbolta fara væntanlega fullir sjálfstrausts á HM í Frakklandi sem hefst á miðvikudaginn. Svíar rúlluðu yfir Síle, 38-21, í síðasta vináttulandsleiknum fyrir HM í kvöld. Leikið var í Malmö. Í síðustu viku vann Svíþjóð tvo sigra á Noregi og sænska liðið vann því alla þrjá vináttulandsleiki sína í aðdraganda HM. Raunar hafa Svíar unnið alla fimm leiki sína síðan Kristján var ráðinn þjálfari liðsins síðasta haust. Svíar voru miklu sterkari aðilinn í leik kvöldsins og staðan í hálfleik var 18-10. Í seinni hálfleik breikkaði bilið enn frekar og þegar lokaflautið gall var munurinn 17 mörk, 38-21. Simon Jeppsson, Niclas Ekberg, Jesper Konradsson, Emil Frend Öfors, Albin Lagergren og Mattias Zachrisson skoruðu allir fjögur mörk fyrir sænska liðið í leiknum í kvöld. Svíar eru í D-riðli á HM ásamt Dönum, Egyptum, Argentínumönnum, Bareinum og Katörum. Fyrsti leikur sænska liðsins er gegn Barein á föstudaginn.
HM 2017 í Frakklandi Tengdar fréttir Kristján áfram með 100% árangur sem þjálfari Svía Svíar höfðu betur gegn Norðmönnum, 27-25, í vináttulandsleik í Kristanstad í gær. Þetta var annar sigur sænska liðsins á því norska á jafnmörgum dögum. 8. janúar 2017 12:15 Svíar völtuðu yfir Norðmenn Lærisveinar Kristjáns Andréssonar í sænska landsliðinu lentu ekki í neinum vandræðum með Norðmenn í Jönköping í dag. 6. janúar 2017 15:50 Mest lesið McGregor fundinn sekur og þarf að borga tugi milljóna í skaðabætur Sport Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Enski boltinn Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Íslenski boltinn Létt gönguferð í skóginum hjá Arsenal Enski boltinn Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Íslenski boltinn Stelpurnar okkar rændar jöfnunarmarki? Handbolti „Bjóst bara við því að við værum að fara vinna árið eftir“ Körfubolti Einfalt hjá Chelsea sem sækir að toppnum Enski boltinn Albert kemur til greina sem sá besti á Ítalíu Fótbolti Hvað gera flokkarnir fyrir afreksfólk í íþróttum? Sport Fleiri fréttir Stelpur Þóris fóru illa með fyrsta mótherja Íslands Stelpurnar okkar rændar jöfnunarmarki? Olís-deild karla: FH vann stórsigur í Breiðholti og önnur úrslit Uppgjörið: Haukar - Valur 29-33 | Valur heldur í við toppliðin með sigri gegn Haukum Íslendingaliðin töpuðu bæði Ísland tapaði með minnsta mun Ekki haft tíma til að spá í EM Framarar náðu toppliðunum að stigum Frábær endasprettur hjá Janusi Daða og félögum Viggó öflugur í dramatískum endurkomusigri Aron og Bjarki fögnuðu sigri gegn Viktori Gísla Hollensku stelpurnar í fínu formi fyrir EM „Mér finnst við alveg skítlúkka“ Kári í bann fyrir „illkvittið“ högg í andlit Fæddur árið 2007, brillerar í efstu deild og fann upp á Orra Óstöðvandi Þórey gaf ekki kost á sér: „Snýst um hlutverk mitt innan liðsins“ Frábær sigur hjá Orra og félögum á móti PSG Kristján lét að sér kveða þegar sigurgangan hélt áfram Súrt kvöld fyrir Íslendingaliðin í Meistaradeildinni „Langstærsti búningasamningur sem HSÍ hefur gert“ Viktor mætir Aroni: „Hann var átrúnaðargoðið mitt“ Landsliðin spila í Adidas næstu árin „Eigum ekki að setja sálfa okkur í þessa stöðu“ „Bara svona skítatilfinning“ Kemur liðsfélaga sínum til varnar: „Einn af uppáhaldsgaurunum mínum“ Tvö Íslendingalið áfram með fullt hús í Evrópudeildinni FH náði aðeins betri úrslitum á móti Gummersbach í þetta skiptið Uppgjör: Valur - Vardar 34-34 | Víti þegar leiktíminn var liðinn felldi Val Ásbjörn leikgreinir Gummersbach Valskonur til Málaga en Haukar mæta liði frá Úkraínu Sjá meira
Kristján áfram með 100% árangur sem þjálfari Svía Svíar höfðu betur gegn Norðmönnum, 27-25, í vináttulandsleik í Kristanstad í gær. Þetta var annar sigur sænska liðsins á því norska á jafnmörgum dögum. 8. janúar 2017 12:15
Svíar völtuðu yfir Norðmenn Lærisveinar Kristjáns Andréssonar í sænska landsliðinu lentu ekki í neinum vandræðum með Norðmenn í Jönköping í dag. 6. janúar 2017 15:50