Spánverjarnir keyrðu yfir Pólverja í seinni hálfleik Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. janúar 2017 19:28 Daniel Sarmiento skorar fyrir spænska landsliðið í kvöld. Vísir/EPA
Spænska handboltalandsliðið er í riðli með Íslandi á HM í Frakklandi og spænska landsliðið lítur vel út ef marka má æfingaleik á móti Póllandi í Irún í kvöld. Pólverjarnir voru reyndar í fínum málum í fyrri hálfleiknum og einu marki yfir, 12-11, í upphafi þess síðari. Þá fór spænska liðið í gang og hreinlega keyrði yfir Pólverjana í seinni hálfleiknum. Spánverjarnir unnu síðustu 28 mínútur leiksins 19-8 og þar með leikinn með tíu mörkum, 30-20. Jordi Ribera, þjálfari spænska liðsins, hefur aðeins hrist upp í sínum mönnum í hálfleiknum og þegar Spánverjarnir komust í gang þá var lítið um svör hjá lærisveinum Talant Duyshebaev í pólska landsliðinu. Pólverjar eru í A-riðli á HM og gæti orðið mótherjar íslenska liðsins í sextán liða úrslitum heimsmeistaramótsins komist íslenska liðið upp úr B-riðlinum. Gurutz Aginagalde, 39 ára markvörður spænska liðsins, setti nýtt met í kvöld en hann varð þá elsti leikmaðurinn til að spila sinn fyrsta A-landsleik fyrir Spán. Ísland mætir Spáni í fyrsta leik sínum á HM eftir tæpa viku. Það verður afar erfitt verkefni fyrir strákana okkar ef marka má leikinn í kvöld.#Hispanos #TIE201760' 30:20 ¡Final en Irún! Rotunda victoria española cimentada en una gran segunda mitad.— RFEBalonmano (@RFEBalonmano) January 6, 2017
Handbolti HM 2017 í Frakklandi Mest lesið Brjóta lög fótboltans með sýningunni í hálfleik Fótbolti Segir að þarna hafi Haaland skorað sjálfsmark Fótbolti Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Enski boltinn Bónorð strax eftir leik í Garðabæ Íslenski boltinn „Er dómarinn á því getustigi sem þarf í undanúrslitum HM?“ Fótbolti Tvenna Daníels tryggði Víkingi meira en hundrað milljónir Fótbolti Sjáðu Víkinga fagna lokaflautinu og sæti í næstu umferð Fótbolti Kæra forseta FIFA til Alþjóðaólympíunefndarinnar Fótbolti Landsliðsmiðverðirnir skiptu báðir um lið í dag Fótbolti Urðu að sofa úti á svölum á hótelherberginu Sport Fleiri fréttir Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Sjá meira