Allir bikarmeistarar yngri flokka: Vítakeppni í Akureyrarslagnum | Myndband Tómas ÞóR Þórðarson skrifar 27. febrúar 2017 10:30 Haukur Þrastarson, Jóhann Páll Einarsson, Lena Margrét Valdimarsdóttir, Elín Rósa Magnúsdóttir og Tómas Gunnarsson voru öll valin maður leiksins. myndir/hsí
Samhliða úrslitahelgi Coca Cola-bikars karla og kvenna í handbolta fór fram bikarhelgi yngri flokkanna þar sem barist var um sjö bikara. Fram og Fylkir voru sigursælust um helgina en hvort lið vann tvo bikara. Framarar unnu 2. flokk karla með 25-22 sigri á Val og komu þannig fram hefndum fyrir úrslitaleikinn í fyrra. Framstúlkur unnu 3. flokk kvenna sem er elsti aldursflokkurinn í kvennaflokki. Lena Margrét Valdimarsdóttir var kjörin besti leikmaður úrslitaleik 3. flokks kvenna en hún gerði sér lítið fyrir og skoraði ellefu mörk í fjögurra marka sigri Framliðsins á HK, 26-22. Valsmenn náðu einum bikar um helgina en þeir lögðu FH, 28-27, í úrslitaleik 3. flokks. Þar fór Jóhann Páll Einarsson á kostum í marki Hlíðarendaliðsins og varði ellefu skot. Fyrir það var hann valinn maður leiksins. Gísli Þorgeir Kristjánsson fór hamförum í liði FH ogskoraði ellefu mörk. Það dugði þó ekki til. Fylkir er greinilega með sterkan fjórða flokk hjá stelpunum en þar vann Árbæjarliðið bæði hjá þeim eldri og yngri. Markvörðurinn Alexandra Gunnarsdóttir varði 22 skot fyrir eldri hópinn í 21-16 sigri á Fram og var valin maður leiksins en Elín Rósa Magnúsdóttir fékk þann heiður eftir að skora sex mörk í 22-18 sigri Fylkis á ÍBV fyrir yngra liðið. Haukur Þrastarson frá Selfossi fór hamförum annað árið í röð í Höllinni. Þessi bráðefnilegi leikmaður skoraði fimmtán mörk fyrir Selfoss er það valtaði yfir ÍR, 28-20, í bikarúrslitum 4. flokks karla eldri. Haukur skoraði 21 mark úr 23 skotum þegar Selfossliðið hans vann FH í bikarúrslitum 4. flokks karla yngri á síðasta ári. Dramatíkin var mest fyrir norðan þar sem erkifjendurnir Þór og KA mættust í úrslitaleik 4. flokks karla yngri. Þar sem norðanliðin mættust var ákveðið að flytja ekki alla í bæinn heldur spila á Akureyri og úr varð svakalegur leikur sem vel var mætt á. Úrslitin réðust ekki fyrr en í vítakastkeppni eftir að jafnt var í leikslok, 20-20, og eftir framlengingu, 25-25. Þórsarar skoruðu úr fjórum vítum en KA-menn úr þremur og sigurinn því þeirra rauðu og hvítu. Þessi úrslit skipta auðvitað miklu máli í þessum ríg fyrir norðan eins og sjá má á meðfylgjandi myndbandi. Maður leiksins var Tómas Gunnarsson sem varði 28 skot í marki Þórs.Hér að neðan má sjá úrslit og markaskorara úr öllum bikarúrslitaleikjum yngri flokkanna um helgina. Upplýsingar eru fegnar frá heimasíðu HSÍ.2. flokkur karla: Fram - Valur 25-22Fram: Ragnar Kjartansson 7, Lúðvík Thorberg Arnkelsson 4, Þorgeir Bjarki Davíðsson 4, Davíð Reynisson 4, Svanur Páll Vilhjálmsson 2, Róbert Árni Guðmundsson 2, Guðjón Andri Jónsson 1, Andri Dagur Ófeigsson 1.Valur: Ýmir Gíslason 5, Arnór Snær Óskarsson 3, Bjarni Ófeigur Valdimarsson 3, Jökull Sigurðarson 2, Þorgils Jón Svölu Baldursson 2, Sigurvin Jarl Ármannsson 2, Markús Björnsson 2, Egill Magnússon 1, Guðmundur Sigurðsson 1, Tumi Steinn Rúnarsson 1.Maður leiksins: Lúðvík Thorberg Arnkelsson, Fram. Fram er bikarmeistari í 2.ka. eftir sigur á móti Val 25-22 í bráðskemmtilegum leik. Lúðvík Thorberg Arnkelsson var valinn maður leiksins en hann skoraði 4 mörk fyrir Fram í dag. #handbolti #cocacolabikarinn A post shared by Handknattleikssamband Íslands (@hsi_iceland) on Feb 26, 2017 at 9:46am PST 3. flokkur karla: Valur - FH 28-27Valur: Sveinn Jose Rivera 5, Arnór Snær Óskarsson 4, Tumi Steinn Rúnarsson 3, Bjarni Ófeigur Valdimarsson 3, Stiven Tobar Valencia 3, Viktor Andri Jónsson 3, Ásgeir Snær Vignisson 2, Markús Björnsson 2, Egill Magnússon 1, Alexander Jón Másson 1, Eiríkur Þórarinsson 1.FH: Gísli Þorgeir Kristjánsson 11, Helgi Freyr Sigurgeirsson 6, Jakob Martin Ásgeirsson 4, Einar Örn Sindrason 2, Eyþór Örn Ólafsson 2, Egill Sturluson 1, Logi Aronsson 1.Maður leiksins: Jóhann Páll Einarsson, Val (14 varin skot). Valsmenn eru bikarmeistarar í 3.ka. eftir sigur á móti FH 28-27 í æsispennandi leik. Maður leiksins var valinn Jóhann Páll Einarsson en hann varði 14 skot í marki Vals. #handbolti #cocacolabikarinn A post shared by Handknattleikssamband Íslands (@hsi_iceland) on Feb 26, 2017 at 6:06am PST 3. fokkur kvenna: Fram - HK 26-22Fram: Lena Margrét Valdimarsdóttir 11, Erna Guðlaug Gunnarsdóttir 5, Ragnheiður Ósk Ingvarsdóttir 3, Svala Júlía Gunnarsdóttir 3, Harpa María Friðgeirsdóttir 3, Elísabet Mjöll Guðjónsdóttir 1.HK: Elva Arinbjarnar 5, Tinna Sól Björgvinsdóttir 3, Birta Rún Grétarsdóttir 3, Berglind Þorsteinsdóttir 2, Azra Cosic 2, Elna Ólöf Guðjónsdóttir 2, Ágústa Huld Gunnarsdóttir 2, Indíana Líf Bergsteinsdóttir 2, Ada Kozicka 1.Maður leiksins: Lena Margrét Valdimarsdóttir, Fram. Framstúlkur eru bikarmeistarar í 3.kv. eftir sigur á móti HK 26-22 í kaflaskiptum leik. Lena Margrét Valdimarsdóttir var valin maður leiksins en hún skoraði 11 mörk fyrir Fram í dag. #handbolti #cocacolabikarinn A post shared by Handknattleikssamband Íslands (@hsi_iceland) on Feb 26, 2017 at 7:54am PST 4. fokkur karla eldri: Selfoss - ÍR 28-20Selfoss: Haukur Þrastarson 15, Daníel Karl Gunnarsson 3, Gunnar Flosi Grétarsson 3, Sölvi Svavarsson 2, Þorsteinn Freyr Gunnarsson 2, Haukur Páll Hallgrímsson 1, Bergsveinn Vilhjálmur Ásmundsson 1, Daníel Garðar Antonsson 1.ÍR: Gunnar Aðalsteinsson 8, Viktor Sigurðsson 5, Atli Kolbeinn Siggeirsson 3, Karl Patrick Marteinsson 3, Hafsteinn Jónsson 1.Maður leiksins: Haukur Þrastarson, Selfossi. Selfoss er bikarmeistari 4.ka. eldri eftir sigur á ÍR 28-20. Haukur Þrastarson var valinn maður leiksins en hann skoraði 15 mörk fyrir Selfoss. #handbolti #cocacolabikarinn A post shared by Handknattleikssamband Íslands (@hsi_iceland) on Feb 26, 2017 at 1:05pm PST 4. flokkur kvenna eldri: Fylkir - Fram 21-16Fylkir: María Ósk Jónsdóttir 8, Elín Rósa Magnúsdóttir 6, Selma María Jónsdóttir 4, Elín Arna Tryggvadóttir 2, Thelma Lind Victorsdóttir 1.Fram: Daðey Ásta Hálfdánsdóttir 5, Telma Sól Bogadóttir 4, María Ellen Birgisdóttir 3, Harpa Elín Haraldsdóttir 2, Ragnheiður Ásmundsdóttir 1, Sæunn Nanna Ægisdóttir 1.Maður leiksins: Alexandra Gunnarsdóttir, Fylki (22 varin skot). Fylkir er bikarmeistari í 4.kv. eldri eftir sigur á Fram 21-16. Alexandra Gunnarsdóttir var valin maður leiksins en hún varði 22 skot í marki Fylkis. #handbolti #cocacolabikarinn A post shared by Handknattleikssamband Íslands (@hsi_iceland) on Feb 26, 2017 at 11:50am PST 4. fokkur karla yngri: Þór - KA 29-28 (e. vítakeppni)Þór: Aron Hólm Kristjánsson 7, Auðunn Ingi Valtýsson 5, Sigurður Bergmann Sigmarsson 5, Daníel Orri Bjarkason 4, Hákon Ingi Halldórsson 2, Jón Ólafur Þorsteinsson 2.KA: Arnór Ísak Haddsson 12, Ragnar Hólm Sigurbjörnsson 6, Óli Einarsson 5, Fannar Már Jónsson 1, Þorvaldur Daði Jónsson 1.Maður leiksins: Tómas Gunnarsson, Þór (28 varin skot). Þór Akureyri er bikarmeistari í 4.ka. yngri eftir sigur á móti KA 29-28 eftir framlengdan leik og vítakeppni. Þessi magnaði leikur fór fram í Íþróttahöllinni á Akureyri fyrr í dag. Tómas Gunnarsson var valinn maður leiksins en hann varði mark Þórsara meistaralega í leiknum. #handbolti #cocacolabikarinn A post shared by Handknattleikssamband Íslands (@hsi_iceland) on Feb 26, 2017 at 12:12pm PST 4. flokkur kvenna yngri: Fylkir - ÍBV 22-18Fylkir: Elín Rósa Magnúsdóttir 6, Selma Rósa Jónsdóttir 6, Katrín Tinna Jensdóttir 5, Hanna Karen Ólafsdóttir 4, Ásthildur Bertha Bjarkadóttir 1.ÍBV: Harpa Valey Gylfadóttir 7, Mía Rán Guðmundsdóttir 5, Linda Björk Brynjarsdóttir 4, Hekla Sól Jóhannsdóttir 1, Telma Aðalsteinsdóttir 1.Maður leiksins: Elín Rósa Magnúsdóttir, Fylki. Fylkir er bikarmeistari í 4.kv. yngri eftir sigur á móti ÍBV 22-18. Maður leiksins var valinn Elín Rósa Magnúsdóttir úr Fylki en hún skoraði 6 mörk í leiknum. #handbolti #cocacolabikarinn A post shared by Handknattleikssamband Íslands (@hsi_iceland) on Feb 26, 2017 at 4:15am PST
Íslenski handboltinn Tengdar fréttir Orri Freyr: Varnarleikurinn er lykillinn að öllum sigrum Guðjón Guðmundsson ræddi við bræðurna Ými og Orra Frey sem léku lykilhlutverk í sigri Valsmanna á Aftureldingu í úrslitum bikarsins í handbolta aðeins viku eftir að hafa unnið frækinn sigur ytra í Áskorendabikarnum. 26. febrúar 2017 19:45 Umfjöllun, viðtöl og myndir: Afturelding - Valur 22-26 | Tíundi bikartitill Valsmanna Valur er bikarmeistari annað árið í röð og í tíunda sinn alls eftir sigur á Aftureldingu, 22-26, í úrslitaleik Coca Cola-bikars karla í dag. 25. febrúar 2017 19:45 Myndasyrpa: Stjörnukonur vörðu bikarmeistaratitilinn Myndasyrpa úr Laugardalshöll þar sem Garðbæingar vörðu bikarmeistaratitilinn í kvennaflokki í handbolta með naumum eins marka sigri á Fram. 25. febrúar 2017 16:04 Hlynur: Tvöfaldur fögnuður í kvöld Hlynur Morthens, markvörður Vals, var hæstánægður með bikarinn í hendi þegar blaðamaður Vísis hitti hann að máli eftir bikarúrslitaleikinn gegn Aftureldingu í dag. 25. febrúar 2017 18:54 Óskarinn áfram á Hlíðarenda Það væri kannski rétt að endurnefna bikarinn sem keppt er um í Coca Cola-bikar karla Óskarinn. Enginn þjálfari hefur nefnilega unnið bikarinn jafn oft og Óskar Bjarni Óskarsson sem stýrði Val í fimmta sinn til sigurs í bikarkeppninni á laugardaginn. Valur vann þá fjögurra marka sigur á Aftureldingu, 22-26. 27. febrúar 2017 06:00 Draumabyrjun Stjörnukvenna skóp sigurinn Stórkostleg byrjun Stjörnunnar lagði grunninn að sigrinum á Fram, 19-18, og öðrum bikarmeistaratitli Garðbæinga í röð. Stjörnukonur voru tilbúnar strax frá upphafsflauti á meðan Framkonur sáu sér ekki fært að byrja leikinn fyrr en eftir 20 mínútur. 27. febrúar 2017 06:30 Stjörnuliðin finna sig vel í bikarúrslitunum Stjörnukonur urðu bikarmeistarar annað árið í röð um helgina og hafa þar með unnið bikarinn átta sinnum. Kvennalið Stjörnunnar lék sinn fyrsta bikarúrslitaleik árið 1986 en stelpurnar úr Garðabænum náðu aðeins að vinna einn af fyrstu sjö bikarúrslitaleikjum sínum. 27. febrúar 2017 07:00 Umfjöllun, viðtöl og myndir: Stjarnan - Fram 19-18 | Stjarnan bikarmeistari annað árið í röð Stjarnan tryggði sér sigurinn í Coca-Cola bikarkeppni kvenna í handbolta annað árið í röð með 19-18 sigri á Fram í Laugardalshöllinni í dag. . Stjarnan var 13-9 yfir í hálfleik. 25. febrúar 2017 16:00 Bikarkóngurinn Óskar Bjarni: Hefðum getað farið á taugum Óskar Bjarni Óskarsson stýrði Val í fimmta sinn til bikarmeistaratitils. Hann er sigursælasti þjálfarinn í sögu bikarkeppninnar og hann var að vonum alsæll eftir sigurinn á Aftureldingu í dag. 25. febrúar 2017 18:20 Myndasyrpa: Valsmenn bikarmeistarar í tíunda skiptið Valur er bikarmeistari annað árið í röð og í tíunda sinn alls eftir sigur á Aftureldingu, 22-26, í úrslitaleik Coca Cola-bikars karla í dag í Laugardalshöllinni. 25. febrúar 2017 19:00 Mest lesið Metinn á rúmlega 17 milljarða fyrr á árinu en má nú fara á láni Enski boltinn „Gætu gert hrikalega góða hluti með íslenska landsliðið“ Fótbolti Dagný gleymd eða afskrifuð?: Hefur ekkert heyrt í landsliðsþjálfaranum Fótbolti Laumaði hauskúpu afa síns inn á úrslitaleikinn Fótbolti Spiluðu deildina hundrað þúsund sinnum og reiknuðu sigurlíkur liðanna Handbolti Ótrúleg endurkoma Feyenoord í Manchester Fótbolti Slot mætti með Salah brandara á blaðamannafundinn Sport „Við erum brothættir“ Fótbolti Dagskráin í dag: Stórleikur á Anfield, Bónus deild kvenna og margt fleira Sport Tvær tvöfaldar þrennur í sigrum Tindastóls og Þórs Akureyrar Körfubolti Fleiri fréttir Uppgjörið: FH - Fenix Toulouse 25-29 | Tap í síðasta Evrópuleik FH-inga Porto lagði Val í Portúgal Haukar með mikilvægan sigur í Mosfellsbæ Ótrúlegur Óðinn í stórsigri Kadetten sem skipti þó engu Spiluðu deildina hundrað þúsund sinnum og reiknuðu sigurlíkur liðanna Þjálfari FH með hljóðnema á sér: „Massa reynsla hérna í bland við massa greddu“ HK gaf leik gegn Herði: „Ekki nýtt vandamál fyrir okkur á landsbyggðinni“ Sameinast litla bróður hjá Kolstad Tímabært að breyta til Benedikt markahæstur í sannfærandi sigri Kolstad Aftur eins marks tap en nú tekur EM við Lokað á útsendingu frá generalprufu Íslands Fulltrúar ÍBV og HSÍ hafi mætt seint: „Í mínum huga er þetta algjör þvæla“ ÍBV kærði Hauka: „Hvernig gæti HSÍ verið annarrar skoðunar en reglurnar?“ Stelpur Þóris fóru illa með fyrsta mótherja Íslands Stelpurnar okkar rændar jöfnunarmarki? Olís-deild karla: FH vann stórsigur í Breiðholti og önnur úrslit Uppgjörið: Haukar - Valur 29-33 | Valur heldur í við toppliðin með sigri gegn Haukum Íslendingaliðin töpuðu bæði Ísland tapaði með minnsta mun Ekki haft tíma til að spá í EM Framarar náðu toppliðunum að stigum Frábær endasprettur hjá Janusi Daða og félögum Viggó öflugur í dramatískum endurkomusigri Aron og Bjarki fögnuðu sigri gegn Viktori Gísla Hollensku stelpurnar í fínu formi fyrir EM „Mér finnst við alveg skítlúkka“ Kári í bann fyrir „illkvittið“ högg í andlit Fæddur árið 2007, brillerar í efstu deild og fann upp á Orra Óstöðvandi Þórey gaf ekki kost á sér: „Snýst um hlutverk mitt innan liðsins“ Sjá meira
Orri Freyr: Varnarleikurinn er lykillinn að öllum sigrum Guðjón Guðmundsson ræddi við bræðurna Ými og Orra Frey sem léku lykilhlutverk í sigri Valsmanna á Aftureldingu í úrslitum bikarsins í handbolta aðeins viku eftir að hafa unnið frækinn sigur ytra í Áskorendabikarnum. 26. febrúar 2017 19:45
Umfjöllun, viðtöl og myndir: Afturelding - Valur 22-26 | Tíundi bikartitill Valsmanna Valur er bikarmeistari annað árið í röð og í tíunda sinn alls eftir sigur á Aftureldingu, 22-26, í úrslitaleik Coca Cola-bikars karla í dag. 25. febrúar 2017 19:45
Myndasyrpa: Stjörnukonur vörðu bikarmeistaratitilinn Myndasyrpa úr Laugardalshöll þar sem Garðbæingar vörðu bikarmeistaratitilinn í kvennaflokki í handbolta með naumum eins marka sigri á Fram. 25. febrúar 2017 16:04
Hlynur: Tvöfaldur fögnuður í kvöld Hlynur Morthens, markvörður Vals, var hæstánægður með bikarinn í hendi þegar blaðamaður Vísis hitti hann að máli eftir bikarúrslitaleikinn gegn Aftureldingu í dag. 25. febrúar 2017 18:54
Óskarinn áfram á Hlíðarenda Það væri kannski rétt að endurnefna bikarinn sem keppt er um í Coca Cola-bikar karla Óskarinn. Enginn þjálfari hefur nefnilega unnið bikarinn jafn oft og Óskar Bjarni Óskarsson sem stýrði Val í fimmta sinn til sigurs í bikarkeppninni á laugardaginn. Valur vann þá fjögurra marka sigur á Aftureldingu, 22-26. 27. febrúar 2017 06:00
Draumabyrjun Stjörnukvenna skóp sigurinn Stórkostleg byrjun Stjörnunnar lagði grunninn að sigrinum á Fram, 19-18, og öðrum bikarmeistaratitli Garðbæinga í röð. Stjörnukonur voru tilbúnar strax frá upphafsflauti á meðan Framkonur sáu sér ekki fært að byrja leikinn fyrr en eftir 20 mínútur. 27. febrúar 2017 06:30
Stjörnuliðin finna sig vel í bikarúrslitunum Stjörnukonur urðu bikarmeistarar annað árið í röð um helgina og hafa þar með unnið bikarinn átta sinnum. Kvennalið Stjörnunnar lék sinn fyrsta bikarúrslitaleik árið 1986 en stelpurnar úr Garðabænum náðu aðeins að vinna einn af fyrstu sjö bikarúrslitaleikjum sínum. 27. febrúar 2017 07:00
Umfjöllun, viðtöl og myndir: Stjarnan - Fram 19-18 | Stjarnan bikarmeistari annað árið í röð Stjarnan tryggði sér sigurinn í Coca-Cola bikarkeppni kvenna í handbolta annað árið í röð með 19-18 sigri á Fram í Laugardalshöllinni í dag. . Stjarnan var 13-9 yfir í hálfleik. 25. febrúar 2017 16:00
Bikarkóngurinn Óskar Bjarni: Hefðum getað farið á taugum Óskar Bjarni Óskarsson stýrði Val í fimmta sinn til bikarmeistaratitils. Hann er sigursælasti þjálfarinn í sögu bikarkeppninnar og hann var að vonum alsæll eftir sigurinn á Aftureldingu í dag. 25. febrúar 2017 18:20
Myndasyrpa: Valsmenn bikarmeistarar í tíunda skiptið Valur er bikarmeistari annað árið í röð og í tíunda sinn alls eftir sigur á Aftureldingu, 22-26, í úrslitaleik Coca Cola-bikars karla í dag í Laugardalshöllinni. 25. febrúar 2017 19:00