Logi: Erfitt að kyngja þessu Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 9. mars 2017 21:59 Logi skoraði 26 stig, þar af 20 í seinni hálfleik. Vísir/Ernir
Logi Gunnarsson var vitanlega svekktur eftir tap Njarðvíkur gegn Þór í Þorlákshöfn í kvöld. Þá varð ljóst að Njarðvík yrði ekki með í úrslitakeppni efstu deildar karla í fyrsta sinn síðan 1993. „Ég spilaði mitt fyrsta tímabil með Njarðvík árið 1997 og síðan þá hef ég alltaf verið í að minnsta kosti í undanúrslitum og unnið marga titla þau ár sem ég hef verið með liðinu,“ sagði hann við Vísi eftir leikinn í kvöld. „En svona er þetta bara. Þetta varð raunin í þetta árið. Við vorum í erfiðleikum í upphafi tímabilsnis og það kom í bakið á okkur núna. Þessu þurfum við bara að kyngja en það er erfitt.“ Logi segir að liðið hafi ekki hitt á góðan dag í Þorlákshöfn í kvöld. „Við hittum illa en vorum samt að fá fín skot. Varnarleikurinn var ekki nógu góður hjá okkur heldur.“ „En samt náðum við að jafna leikinn en þeir svöruðu með tveimur þriggja stiga skotum. Þá var þetta erfitt.“ Hann segist hafa liðið vel í leiknum, þrátt fyrir að hafa verið með þá Ólaf Helga og Majiec Baginski á móti sér allan leikinn. „Ég var ekki að þröngva mér í nein skot og tók bara það sem mér bauðst. Svo reyndi ég bara að spila vörn á Carberry eins og ég gat og það gekk ágætlega. En það var ekki nóg í dag.“ Logi á sjálfur nóg eftir og kvíðir ekki framtíðinni í Njarðvík. „Þeir koma á færibandi úr yngri flokkunum, öflugir leikmenn og við munum byggja á því sem fyrr. Við kvíðum engu.“ Nánari umfjöllun um leikinn má finna hér fyrir neðan.
Dominos-deild karla Mest lesið „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Körfubolti Michael Oliver getur ekki dæmt fyrsta leikinn sinn á HM Fótbolti Lögreglumenn dulbjuggu sig sem lukkudýr HM fyrir fíkniefnaaðgerð Fótbolti 36 ára fyrrum NFL-stjarna látin Sport Beckham fékk sína stjörnu á götuna frægu í Hollywood Fótbolti Fleiri fréttir Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Sjá meira