Lífið

Emmsjé Gauti, HAM og KK á Aldrei fór ég suður

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Aldrei fór ég suður fer fram sem aldrei fyrr um páskana á Ísafirði en tónleikadagana, föstudags- og laugardagskvöld um páskahelgina, ber upp 14. og 15. apríl þetta árið. Annað árið í röð fer hátíðin fram í skemmu rækjuverksmiðjunnar Kampa við Ásgeirsgötu.

Í spilaranum að ofan má sjá kynningarmyndband hátíðarinnar í ár.

Óhætt er að segja að dagskráin sé glæsileg þetta árið en fram koma Emmsjé Gauti, HAM, KK band, Kött Grá Pje, Valdimar, Mugison, Lúðrasveit tónlistarskóla Ísafjarðar, Soffía Björg, Rythmatik, Sigurvegarar Músiktilrauna, Hildur, Vök, Karó og Börn.

Lagið Reykjavík með Emmsjé Gauta hefur notið mikilla vinsælda.

Nokkrir listamenn endurnýja nú kynnin við rokkhátíðina en Emmsjé Gauti tryllti lýðinn á Ísafirði fyrir tveimur árum og HAM rokkaði árið 2007 og svo aftur 2012.

Þá söng Valdimar Guðmundsson íslensk dægurlög fyrir gesti fyrir tveimur árum en kemur nú fram með hljómsveit sinni. Mugison er svo fastagestur enda stofnandi hátíðarinnar ásamt föður sínum. Árlega ætlar húsið af ísfirskri skemmu þegar hann syngur um Gúanóstelpuna sína.

Að neðan má sjá eitt fjölmargra myndbanda sem Fjölnir Baldursson hefur tekið á Aldrei fór ég suður undanfarin ár.

Sem fyrr er ókeypis inn á hátíðina og lofar rokkstjórinn, Kristján Freyr Halldórsson frá Hnífsdal, mikilli stemningu. Hann tók við rokkstjórakeflinu af Birnu Jónasdóttur sem stýrði síðustu þremur hátíðum. Kristján hefur verið í innsta hring svo til frá fyrsta ári hátíðarinnar sem nú er haldin í fjórtánda skipti.

Þá koma sigurvegarar í Músíktilraunum fram en árlega er þeim boðið vestur að spila fyrir framan mannfjöldann sem er mikil lífsreynsla. Músíktilraunir fara fram síðustu vikuna í mars.

Kynnir á hátíðinni er Pétur Magnússon, betur þekktur sem Fallegi smiðurinn. Sem fyrr er ókeypis inn á hátíðina og þá má nefna að Skíðavikan fer fram á Ísafirði sömu helgi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.