Fannst látinn í Airbnb-íbúð í Salahverfi í Kópavogi Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 6. mars 2017 12:42 Ekki er talið að andlát mannsins hafi borið að með saknæmum hætti. Vísir/Vihelm
Bandarískur karlmaður um þrítugt fannst látinn í Airbnb-íbúð í Salahverfi í Kópavogi á laugardagsmorgun. Þetta staðfestir Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við Vísi en fyrst var greint frá málinu á vef Stundarinnar. Maðurinn var hér á ferð ásamt vinahópi sínum sem var samankominn hér á landi til að halda upp á afmæli. Félagar hans gátu ekki vakið hann að morgni laugardags en að sögn Gríms er ekki grunur í málinu um refsiverða háttsemi. Málið er engu að síður rannsakað líkt og önnur mannslát og er beðið niðurstöðu krufningar. Dánarorsök liggur því ekki fyrir. Skýrsla var tekin af þeim sem voru með manninum á ferð hér á landi. „Þarna var náttúrulega hópur manna og það var tekin skýrsla af þeim öllum þannig að það liggja fyrir upplýsingar frá samferðamönnum hans,“ segir Grímur en hefur ekki nákvæmar upplýsingar um hversu margir þeir voru sem gáfu skýrslu. Í frétt Stundarinnar er rætt við eiganda íbúðarinnar sem segir vinahópinn hafa verið í áfalli vegna málsins og fengið áfallahjálp vegna þess. Þá hafi þau sagt eigandanum að þau hafi ætlað sér að taka næstu flugvél heim en hópurinn kom hingað til lands frá Bandaríkjunum, Bretlandi sem og annars staðar frá.
Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Innlent Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Erlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Innlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent Fleiri fréttir Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Tíðindi í Kænugarði og fortíðarkennt fjölmiðlaumhverfi Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Sjá meira