Fyrrverandi yfirmaður njósnamála segir Trump ekki hafa verið hleraðan Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 5. mars 2017 18:53 James Clapper. Vísir/EPA
James Clapper, fyrrverandi yfirmaður njósnamála í Bandaríkjunum, segir að það sé fráleitt að halda því fram að leyniþjónustan eða alríkislögreglan hafi látið hlera turn Donald Trump, fyrir forsetakosningarnar í nóvember síðastliðnum. BBC greinir frá. Clapper var yfirmaður njósnamála á þeim tíma sem Trump hefur haldið því fram að hann hafi verið hleraður. Hann segir að ekkert slíkt hafi komið inn á borð til sín á þeim tíma. „Það var ekkert um slíkar hleranir eða skipanir tengdar þeim sem beindust gegn forsetaframbjóðandanum á sínum tíma, né heldur gagnvart framboði hans.“ Clapper tekur fram, að sem yfirmaður leyniþjónustunnar, hafi dómsúrskurður sem til þyrfti til þess að framkvæma hleranir á almennum borgurum, ekki getað farið fram hjá honum. Hvorki Trump, né nokkur úr starfsliði hans hefur enn sem komið er lagt fram gögn sem geta stutt fullyrðingar forsetans, sem hann tísti á Twitter, klukkan hálf sex á laugardagsmorgni að staðartíma. Talsmaður Obama neitaði ásökununum samdægurs í gær en þrátt fyrir það hefur forsetinn kallað eftir því að málið verði rannsakað af þinginu. Talið er víst að forsetinn sé með þessu að reyna að dreifa athyglinni frá tengslum meðlima innan ríkisstjórnar hans við Rússa en fyrir nokkrum dögum varð dómsmálaráðherrann Jeff Sessions, að segja sig frá rannsókn á afskiptum Rússa af bandarísku forsetakosningunum, eftir að í ljós kom að hann hafði átt í samskiptum við rússneska ráðamenn en Sessions sagði undir eiðstaf að það hefði hann ekki gert.
Donald Trump Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Fleiri fréttir Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Sjá meira