Nýja Domino´s deildarliðið fékk rasskell á Hlíðarenda Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. mars 2017 17:50 Valsmenn voru í stuði í dag. Vísir/Anton
Hattarmenn fengu stóran skell í dag í fyrsta leik sínum eftir að liðið tryggði sér sæti meðal þeirra bestu á nýjan leik. Höttur tryggðu sér sæti í Domino´s deild karla í körfubolta með sigri á Ármanni á föstudagskvöldið en þeir voru skotnir niður á jörðina á Hlíðarenda í dag. Valsmenn, sem eru í 3. sæti 1. deildar karla, unnu 34 stiga sigur á Hetti, 118-84, en úrslitin skiptu Hattarliðið ekki máli því liðið er þegar búið að tryggja sér sigurinn í 1. deildinni. Valsmenn eru aftur á móti á leiðinni í úrslitakeppnina þar sem liðin í 2. til 5. sæti berjast um hinn farseðilinn upp í Domino´s deildina. Urald King skoraði 22 stig og tók 15 fráköst fyrir Valsliðið og Austin Magnus Bracey var með 22 stig og 8 stoðsendingar. Það voru fleiri Valsmenn að spila vel, Oddur Birnir Pétursson skoraði 17 stig, Birgir Björn Pétursson var með 14 stig og Illugi Auðunsson skoraði 12 stig, tók 10 fráköst og gaf 6 stoðsendingar. Ragnar Gerald Albertsson skoraði 22 stig fyrir Hött og Aaron Moss var með 21 stig og 8 stoðsendingar. Valsmenn unnu alla þrjá leiki sína á móti Hetti á tímabilinu en það dugði skammt því Hlíðarendapiltar hafa tapað fimm leikjum á móti öðrum liðum deildarinnar. Tapleikirnir þrír hjá Hetti á móti Val eru aftur á móti einu tapleikir þeirra í 1. deildinni í vetur.Valur-Höttur 118-84 (28-26, 34-19, 32-19, 24-20)Valur: Urald King 22/15 fráköst, Austin Magnus Bracey 22/5 fráköst/8 stoðsendingar, Oddur Birnir Pétursson 17, Birgir Björn Pétursson 14/5 fráköst, Illugi Auðunsson 12/10 fráköst/6 stoðsendingar, Sigurður Páll Stefánsson 10, Sigurður Dagur Sturluson 10/5 stoðsendingar, Benedikt Blöndal 9, Gunnar Andri Viðarsson 2.Höttur: Ragnar Gerald Albertsson 22/8 fráköst, Aaron Moss 21/6 fráköst/8 stoðsendingar, Mirko Stefan Virijevic 12/3 varin skot, Hreinn Gunnar Birgisson 7, Nökkvi Jarl Óskarsson 6, Gísli Þórarinn Hallsson 6, Sigmar Hákonarson 5/4 fráköst, Vidar Orn Hafsteinsson 5.
Dominos-deild karla Mest lesið Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Beckham fékk sína stjörnu á götuna frægu í Hollywood Fótbolti Lögreglumenn dulbjuggu sig sem lukkudýr HM fyrir fíkniefnaaðgerð Fótbolti Siggi Raggi með NSÍ á toppnum Fótbolti Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Michael Oliver getur ekki dæmt fyrsta leikinn sinn á HM Fótbolti Katarmenn stálu stiginu með marki í uppbótartíma Fótbolti „Ennþá er boltinn ekki að fara inn í markið“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Sjá meira