Kynntu Barbershop-verkfærakistuna í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 16. mars 2017 21:35 Frá kynningunni í dag.
Landsnefnd UN Women á Íslandi og íslensk stjórnvöld kynntu í dag í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna Barbershop-verkfærakistuna en hún er ætluð hverjum þeim sem vill hvetja karlmenn til að láta til sín taka í baráttunni fyrir kynjajafnrétti. Í tilkynningu frá landsnefnd UN Women á Íslandi segir að verkfærakistan hafi verið þróuð af landsnefndinni í samstarfi við íslensk stjórnvöld og afhent HeForShe, alþjóðlegri hreyfingu UN Women fyrir aukinni þátttöku karla í umræðunnu um jafnrétti kynjanna. „Barbershop-verkfærakistan er aðgengileg á heimasíðu HeForShe og veitir nákvæmar leiðbeiningar um skipulagningu ólíkra viðburða sem allir hafa það þó að markmiði að virkja karla til að beita sér í sínu nærumhverfi fyrir kynjajafnrétti. Þannig gerir verkfærakistan fólki kleift að ná til karla og stráka, óháð staðsetningu eða starfsgeira. Hingað til hefur gjarnan verið litið á þessa baráttu sem einkamál kvenna. Samkvæmt rannsókn á vegum World Economic Forum verður kynjajafnrétti ekki náð í heiminum fyrr en eftir 117 ár ef við höldum áfram á sömu braut á sama hraða. Með stráka og karlmenn um borð er talið að kynjajafnrétti náist helmingi hraðar,“ segir í tilkynningunni. Sérstakur viðburður var haldinn til að kynna verkfærakistuna sem var vel sóttur og komust færri að en vildu.
Mest lesið Fannst látinn í tjaldi Innlent Lést á Fimmvörðuhálsi Innlent Lamb að svelta í sjálfheldu: „Það endar bara á því að drepast ef enginn kemur“ Innlent Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls Innlent „Hver vill ganga í gjaldþrota ríkjasamband?“ Innlent Velja Viljandi villt Innlent Hringekjan tekin úr notkun strax eftir slysið Innlent Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Innlent Var til vandræða og reyndist eftirlýstur Innlent Einelti kvenna birtist oft með lúmskari hætti Innlent Fleiri fréttir Hamagangur meirihlutans minni á norsku Exit-þættina Einelti kvenna birtist oft með lúmskari hætti „Við erum sáttir“: Gönguhóparnir stóðu fyrir sínu Lamb að svelta í sjálfheldu: „Það endar bara á því að drepast ef enginn kemur“ Töluvert um sameiningar lífeyrissjóða upp á síðkastið Andlát í tjaldi og slys á bæjarhátíð Lést á Fimmvörðuhálsi Hringekjan tekin úr notkun strax eftir slysið „Hver vill ganga í gjaldþrota ríkjasamband?“ Fannst látinn í tjaldi Einkunnagjöf, jarðgangagerð og hagræðingaraðgerðir borgarinnar Velja Viljandi villt Var til vandræða og reyndist eftirlýstur Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Kannski rétt að hverfa frá áformum um nýjan sparkvöll við Landakot Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls „Fyllerísrugl“ endaði með handtöku og beinbroti Árekstur við afleggjara á Norðurlandi vestra „Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“ Nýtt app til að finna týndar kisur frumsýnt í dag eftir sex ára þróunarvinnu Rapp og dýrðir í Búðardal Nauðsynlegt að rífa stúkuna sem fyrst Bráð veikindi á Fimmvörðuhálsi Ekið á gangandi vegfaranda við Vík Náði ekki símsambandi og hélt af stað gangandi Með ráðum gert að gefa þjóðinni frí frá pólitíkinni í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar Tveir handteknir eftir hópslagsmál Umferðarslys á Suðurlandi, forsætisráðherra um ESB og Laugardalslaug Afturkalla breytinguna gegn gjaldi Líkamsárás og ölvunarakstur Sjá meira