Lífið samstarf

Ný sérverslun með yfirhafnir

Ný verslun Bernhard Laxdal í glæsilegum húsakynnum.
Ný verslun Bernhard Laxdal í glæsilegum húsakynnum.
KYNNING: Kvenfataverslunin Bernhard Laxdal hefur opnað glæsilega verslun að Skipholti 29b. Guðrún Axelsdóttir, eigandi verslunarinnar, býður vandaðan fatnað og sterk merki.

Við leggjum áherslu á sterk og klassísk kvenfatamerki sem hafa staðist tímans tönn. Þá höfum við í gegnum tíðina lagt mikla áherslu á yfirhafnir í verslun okkar á Laugavegi. Með nýrri verslun í Skipholti verður áherslumunur milli búðanna en báðar munu bjóða GERRY WEBER, þýskan gæðafatnað, en nýja verslunin verður meiri sérverslun með yfirhafnir. Það er okkar sérstaða á íslenskum markaði. Þar bjóðum við úrval ullarkápa, vor- og sumarkápur, haustkápur og regnkápur og einnig glæsikápur,“ segir Guðrún Axelsdóttir, eigandi kvenfataverslunarinnar Bernhard Laxdal.

Guðrún Axelsdóttir ásamt samstarfskonum sínum Rannveigu og Hjördísi, í nýrri verslun Bernhard Laxdal, Skipholti 29b. Mynd/Ernir
Aðalmerki Berhard Laxdal eru Gerry Weber og Betty Barclay. Þá býður verslunin vandaðan fatnað frá Gardeur, Junge, Creenstoe, Cinzia Rocca, Frank Lyman og fleiri.

“Nýja verslunin verður að stórum hluta sérverslun með yfirhafnir. Það er okkar sérstaða á íslenskum markaði,” segir Guðrún.
„Þessi merki fylgjast gríðarlega vel með tískunni og hjá þeim er einnig að finna hágæða efnisval, polýester í þessum flíkum er alls ekki það sama og polýester í ódýrum fatnaði. Þarna er um miklu meiri gæði að ræða,“ segir Guðrún.

„Þá má nefna að viðskiptavinir okkar njóta góðs af styrkingu krónunnar og niðurfellingu tolla af fatnaði en verð hjá okkur hefur lækkað um 20 til 30 prósent. Í dag er allt annað og betra umhverfi en var.

Við fáum nýjar vörur vikulega og hvetjum viðskiptavini til þess að fylgjast með okkur á Facebook. Þar setjum við inn myndir af öllum nýjungum.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.