Öxnadalsheiði lokuð vegna óveðurs Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 24. mars 2017 12:27 Öxnadalsheiði er fjallvegurinn mill Varmahlíðar og Akureyrar. loftmyndir.is
Veginum um Öxnadalsheiði hefur verið lokað vegna óveðurs en skafrenningur og mjög blint er á heiðinni. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni verður hvasst á heiðinni nánast í allan dag. Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni er óvíst hvenær heiðin verður opnuð aftur. Það var reynt áðan en tókst ekki. Þá hefur eitthvað verið um það að ökumenn virði ekki lokunina og hafa þeir því lent í vandræðum en það tefur líka fyrir. Vegagerðin mælir með hjáleiðinni um Siglufjarðarveg sem er greiðfær. Þar er þó nokkuð hvasst og þurfa ökumenn að fara varlega. Innanlandsflug liggur svo niðri vegna veðurs og verður staðan metin aftur klukkan 13:30 að því er fram kemur á vef Flugfélags Íslands. Það er hvasst víða um land nú, vindurinn verður svo örlítið hægari um tíma en vex svo aftur seinnipartinn, að sögn veðurfræðings hjá Veðurstofunni. Færð og aðstæður á vegum eru annars sem hér segir, samkvæmt vef Vegagerðarinnar:Hálka er á Hellisheiði. Hálkublettir og snjóþekja eru víða á Suðurlandi.Á Vesturlandi eru hálkublettir víða en hálka á Holtavörðuheiði en snjóþekja á Bröttubrekku.Á Vestfjörðum er snjóþekja á Steingrímsfjarðarheiði og Þröskuldum, hálka eða snjóþekja er á öðrum leiðum.Hálka eða hálkublettir eru mjög víða á Norðurlandi vestra. Norðaustanlands er hálka á flestum fjallvegum en greiðfært að mestu á láglendi.Á Austurlandi er hálka eða hálkublettir á flestum leiðum. Greiðfært er að mestu með suðausturströndinni.
Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Gul viðvörun eftir stóra skriðu Innlent Fleiri fréttir „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi Sjá meira