Var talsmaður þroskaskerts manns og stal hundruðum þúsunda frá honum Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 20. mars 2017 14:10 Maðurinn stal tæplega 700 þúsund krónum af mjög fötluðum og þroskaskertum manni. vísir/valli
Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt 25 ára gamlan karlmann í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að svíkja út tæplega 700 þúsund krónur af mjög fötluðum og þroskaskertum manni en hinn dæmdi var persónulegur talsmaður hans og með umboð til að greiða fyrir vörur og þjónustu af reikningi umbjóðanda síns. Í dómi héraðsdóms kemur fram að upphæðin nam samtals 681.277 krónum og áttu brotin sér stað á tímabilinu 3. september 2015 til 8. nóvember 2016. Maðurinn millifærði 633.842 krónur af reikningi umbjóðanda síns og inn á eigin reikning. Þá notaði hann debetkort sem var í eigu umbjóðandans og verslaði vörur og þjónustu til eigin nota fyrir 47.435 krónur. Maðurinn játaði brot sín fyrir dómi og var litið til þess þegar refsing var ákveðin. Þá greiddi maðurinn að fullu tilgreinda fjárhæð ásamt vöxtum og kostnaði fyrir útgáfu ákæru lögreglustjóra. Að auki hefur hann lýst iðrun vegna háttseminnar en í dómnum kemur einnig fram að maðurinn hafi brotið alvarlega trúnað gagnvart fötluðum einstaklingi. Þá hefur hann áður sætt refsingu þegar hann greiddi sekt fyrir þjófnaðarbrot. Hæfileg refsing var því ákveðin sex mánuðir skilorðsbundið fangelsi til tveggja ára en dóm héraðsdóms má sjá í heild sinni hér.
Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Innlent Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Erlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Innlent Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Erlent Fleiri fréttir Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Tíðindi í Kænugarði og fortíðarkennt fjölmiðlaumhverfi Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Sjá meira