Segja May ekki hafa hótað ESB Samúel Karl Ólason skrifar 30. mars 2017 10:46 Theresa May, forsætisráðherra Bretlands. Vísir/AFP
Bréf Theresu May, forsætisráðherra Bretlands, til Donald Tusk, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, innihélt ekki hótanir, eins og gagnrýnendur á breska þinginu og í Brussel hafa haldið fram. Þetta segir David Davis, ráðherra ESB-úrsagnar, í ríkisstjórn May. Sendiherra Bretlands gagnvart ESB afhenti Tusk bréf í gær þar sem tveggja ára úrsagnarferli Breta úr sambandinu var formlega hrint af stað. Þar varaði May við því að ef samkomulag næðist ekki á tveimur árum myndi það veikja samstarf Bretlands og ESB gegn glæpum og hryðjuverkum. Það hefur verið túlkað af mörgum á þann veg að May væri að fara fram á góðan viðskiptasamning, ellegar myndi hún draga Bretland úr öryggissamstarfi Evrópu.Davis segir hins vegar að það hafi ekki verið meiningin. Hann hefur mætt í ýmis viðtöl í gær og í morgun þar sem hann segir enga hótun hafa verið í bréfinu. Innanríkisráðherra Bretlands, Amber Rudd, hefur einnig sagt að viðræður um öryggi og viðskipti verði aðskildar. Hins vegar væri ljóst að það þyrfti að endursemja um öryggissamstarf, þar sem það er innifalið í aðild að Evrópusambandinu.
Brexit Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Nóg sé komið af Trump Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Fleiri fréttir Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Sjá meira