Kalla eftir úrsögn Jean Marie Le Pen vegna ummæla um látna lögregluþjóninn Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 29. apríl 2017 10:56 Jean Marie Le Pen, er faðir Marine Le Pen, og fyrrverandi forsetaframbjóðandi. Vísir/EPA
Flokkur franska forsetaframbjóðandans Emmanuel Macron, En Marché!, hefur kallað eftir úrsögn Jean Marie Le Pen úr heiðursembætti frönsku Þjóðfylkingarinnar, vegna ummæla hans um samkynhneigð lögregluþjónsins sem lést í nýliðinni hryðjuverkaárás í París. Reuters greinir frá. Jean Marie, sem er faðir Marine Le Pen, forsetaframbjóðanda, stofnaði Þjóðfylkinguna árið 1972 og leiddi hana til sigurs í fyrri umferð forsetakosninganna árið 2002, áður en hann beið afhroð gegn frambjóðanda Repúblikana, Jacques Chirac, í aðalumferð kosninganna. Ummæli Jean Marie, sem kölluðu á viðbrögð En Marché!, voru um minningarræðu sem samstarfsmaður lögreglumannsins hélt um hann.Langa ræðan sem hann hélt var til þess fallin að stofnanavæða hjónaband samkynhneigða og gerði því mjög hátt undir höfði á opinberum vettvangi. Mér var afar brugðið. Í tilkynningu frá flokki Macron er dóttir Jean Marie, harðlega gagnrýnd fyrir að hafa ekki fordæmt ummæli föður síns á opinberum vettvangi og kallað eftir því að hún gangi úr skugga um að hann segi sig úr flokknum. Jean Marie hafði áður verið rekinn úr stjórn flokksins árið 2015, eftir að hafa sagt að „helförin væri einungis smáatriði í sögunni.“ Hann er enn heiðursforseti í Þjóðfylkingunni.
Mest lesið Nokkrir handteknir vegna mannsláts Innlent Fundu níu skipsflök og ummerki um snjóflóð á hafsbotni við Siglufjörð Fréttir Segir allt að 50 þúsund hermenn frá Norður-Kóreu á leið til Rússlands Erlent Ætlar að láta frysta egg sín og útilokar ekki forsetaframboð Erlent Breyting á geðheilsu og líkamlegu þreki Innlent Handtekinn eftir að kona og barn drukknuðu við Frelsissyttuna Erlent Wilhelm Wessmann er látinn Innlent Frederiksen og Meloni taka höndum saman gegn innflytjendum Erlent Árekstur á Suðurlandsbraut Innlent Mikill viðbúnaður lögreglu í Vogunum Innlent Fleiri fréttir Frederiksen og Meloni taka höndum saman gegn innflytjendum Heitustu sumarmánuðir í Vestur-Evrópu í sögunni Ætlar að láta frysta egg sín og útilokar ekki forsetaframboð Segir allt að 50 þúsund hermenn frá Norður-Kóreu á leið til Rússlands Handtekinn eftir að kona og barn drukknuðu við Frelsissyttuna Netanjahú hafnar friðaráætlun Trumps Ríflega hundrað og sextíu ungmenni handtekin Forstjórinn ræður hvort upptökur úr búkmyndavélum verði birtar Gefur aftur í skyn að hann vilji embættið á ný Rússar taldir bera ábyrgð á sjálfsprengjudrónanum Heitir því að herða byssulöggjöf í kjölfar árásar Spánverjar taka upp landamæraeftirlit gagnvart Ítalíu Blanche staðfestur sem dómsmálaráðherra Sonur Bidens segir náðunina ekki góða ákvörðun Kampavínið klárt þegar hann beið eftir að morðingjar létu til skarar skríða Gert að greiða tugi milljarða fyrir að passa ekki öryggi barna Sjö látnir eftir skotárás í grunnskóla Biður fjársterka stuðningsmenn um að styðja Vance 2028 Íranir segja viðræður á lokametrunum Vísa máli Fauci til dómstóla Sakar lekamenn um landráð vegna „rangra“ frétta „Fagmenn“ smíðuðu og flugu sjálfsprengidrónanum í Leipzig Áhrifavaldur myrtur í beinni Ebóla að stinga viðbragðsaðila í verkfalli af Tómar hillur í vopnabúrum Bandaríkjanna Rússneskur drónasmiður á gjörgæslu vegna bílsprengju Kona stakk fjóra í Lundúnum Rauðar veðurviðvaranir í tugum ítalskra borga Sjálfsprengidróni fannst á flugvelli í Þýskalandi Algjörlega varnarlausir gegn skotflaugum Rússa Sjá meira