Nágrannar tóku ekki eftir neinu óeðlilegu í samskiptum sínum við árásarmanninn í París Atli Ísleifsson skrifar 21. apríl 2017 15:12 Miði fannst nálægt líki mannsins þar sem hann lýsir yfir stuðningi við hryðjuverkasamtökin ISIS. Vísir/AFP
Fjölmargir fjölmiðlar segja nú að maðurinn sem skaut lögreglumann til bana og særði þrjá til viðbótar í París hafi verið Karim Cheurfi, 39 ára franskur ríkisborgari. Hann var skotinn til bana af lögreglu þegar hann flúði af vettvangi.AP hefur fengið aðgang að gögnum lögreglu þar sem heimilsfang árásarmannsins kemur fram, en lögregla gerði húsleit á heimili hans í úthverfinu Chelles, austur af París í nótt. Franskir fjölmiðlar segja að Cheurfi hafi áður setið í fangelsi í tíu ár fyrir að hafa reynt að bana tveimur lögreglumönnum árið 2003. Miði fannst nálægt líki mannsins þar sem hann lýsir yfir stuðningi við hryðjuverkasamtökin ISIS. Samtökin hafa lýst yfir ábyrgð á árásinni en lögregla telur að maðurinn hafi verið einn að verki. Í frétt AP kemur fram að Cheurfi hafi síðast í febrúar verið handtekinn í hryðjuverkarannsókn yfirvalda en síðar verið sleppt vegna skorts á sönnunargögnum. Nágrannar mannsins segja að þeir hafi aldrei tekið eftir einhverju óeðlilegu í samskiptum sínum við manninn sem grunaður er um árásina, en lögregla hefur ekki staðfest nafn árásarmannsins. Cheurfi bjó ásamt móður sinni í íbúðinni í Chelles, en hverfið sem um ræður er lýst sem rólegu millistéttarhverfi.
Hryðjuverk í París Mest lesið Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vilja hækka samræðisaldur Innlent Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Fleiri fréttir Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Sjá meira