Frumvarpið ekki í samræmi við loforð forsetans og fyrri gagnrýni Samúel Karl Ólason skrifar 5. maí 2017 11:30 Mótmælt var fyrir utan þinghúsið í gær. Vísir/AFP
Þingmenn Repúblikanaflokksins samþykktu í gær nýtt heilbrigðisfrumvarp með naumum meirihluta í neðri deild þingsins í Bandaríkjunum. Frumvarpið þykir umdeilt og þetta var í annað sinn sem reynt var að koma því í gegnum þingið. Frumvarpið var samþykkt með 217 atkvæðum gegn 213 og þýðir það að Repúblikanar geta nú sent frumvarpið til meðferðar í öldungadeild þingsins. Enginn Demókrati greiddi atkvæði með frumvarpinu. Þá þykir ekki víst að þingmönnum muni takast að koma því í gegnum öldungadeild þingsins, þar sem repúblikanar eru í naumum meirihluta, 52 gegn 48.Samkvæmt greiningu Washington Post er frumvarpið langt frá því að vera frumvarpið sem Donald Trump lofaði og er ekki í samræmi við þá gagnrýni sem repúblikanar beindu að fyrra frumvarpinu sem kennt er við Barack Obama, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna.Þá hefur Congressional Budget Office, sem er nokkurs konar ríkisendurskoðun þingsins, ekki farið yfir möguleg áhrif frumvarpsins á Bandaríkin og heilbrigðistryggingar. Stofnunin komst þó að því við könnun á fyrra frumvarpinu að alls myndu 24 milljónir manna vera án trygginga á næsta ári, sem er fjölgun um 14 milljónir. Frumvarpið var mikið rætt í spjallþáttum gærkvöldsins í Bandaríkjunum, en hægt er að sjá þá umræðu hér að neðan.Trevor Noah Seth Meyers Stepehen Colbert Jimmy Fallon
Donald Trump Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Fleiri fréttir Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Sjá meira