Hillary segir að tíu síðustu dagar kosningabaráttunnar hafi skipt sköpum Atli Ísleifsson skrifar 3. maí 2017 09:00 Hillary Clinton ræddi við fréttamann CNN, Christiane Amanpour, á viðburðinum Women for Women sem fram fór í New York í gær. Vísir/Getty
Hillary Clinton segir að síðustu tíu dagar kosningabaráttunnar í haust hafi skipt sköpum og ráðið því að Donald Trump hafi náð kjöri sem forseti Bandaríkjanna en ekki hún. Hún kennir Bandarísku alríkislögreglunni FBI og rússneskum stjórnvöldum um hvernig fór. Clinton hefur að mestu haldið sig til hlés eftir kosningarnar í nóvember en ræddi við fréttamann CNN, Christiane Amanpour, á viðburðinum Women for Women sem fram fór í New York í gær. „Ef forstakosningarnar hefðu verið 27. október hefði ég verið forseti ykkar,“ sagði hin 69 ára Clinton. Þann 28. október birtist bréf frá James Comey, yfirmanni FBI, um tölvupóstamál Clinton, og á sama tíma birti Wikileaks upplýsingar frá rússneskum tölvuþrjótum. Sagði Clinton að þessir þættir hafi stuðlað að því að þeir kjósendur sem þóttu líklegir til að kjósa hana fældust frá því. „Þeir voru hræddir burt,“ sagði Clinton. Clinton sagðist þó einnig sjálf bera ábyrgð á ósigrinum og að ótal mistök hafi verið gerð í kosningabaráttunni. Hún skaut þó aðeins á Trump og benti á að hún hafi hlotið fleiri atkvæði en hann. Trump varð þó réttkjörinn forseti vegna kosningakerfisins. Clinton vinnur nú að gerð bókar um kosningabaráttuna sem verður gefin út í haust. Sjá má brot úr viðtalinu að neðan.
Donald Trump Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Fleiri fréttir Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Sjá meira