Dagur Kár áfram í Grindavík og Jóhann Árni kemur aftur Tómas Þór Þórðarson skrifar 10. maí 2017 19:58 Dagur Kár Jónsson heldur áfram í gulu. vísir/ernir
Grindvískir körfuboltaáhugamenn fengu heldur betur gleðifréttir í kvöld þegar staðfest var að Dagur Kár Jónsson er búinn að skrifa undir nýjan tveggja ára samning við félagið. Þetta kemur fram á karfan.is. Dagur Kár, sem var algjörlega magnaður í liði Grindavíkur eftir að koma heim úr háskóla snemma veturs, hefur verið sterklega orðaður við uppeldisfélag sitt Stjörnuna á síðustu dögum en Garðbæinga vantar leikstjórnanda eftir að Justin Shouse lagði skóna á hilluna. Þessi 22 ára gamli bakvörður skoraði 17 stig að meðaltali í leik fyrir Grindjána í þeim 30 leikjum sem hann spilaði auk þess sem hann tók þrjú fráköst og gaf 2,6 stoðsendingar að meðaltali í leik. Dagur átti stóran þátt í því að Grindavík fór alla liða í lokaúrslitin á móti KR en tapaði fyrir meisturunum í oddaleik í DHL-höllinni. „Síðasta tímabil var virkilega skemmtilegt. Allir voruvirkilega áhugasamir um að hafa mig áfram, svo eigum við óklárað verk hérna í Grindavík,“ segir Dagur Kár við karfan.is. Grindvíkingar gerðu meira en bara að framlengja við Dag Kár því Jóhann Árni Ólafsson er kominn aftur frá Njarðvík. Jóhann Árni varð meistari með Grindavík 2012 og 2013 en sneri aftur til Njarðvíkur fyrir síðustu leiktíð.
Dominos-deild karla Mest lesið Elísa stórbætti metið í hundrað kílómetra hlaupi: „Mér líður furðuvel“ Sport Sjáðu guttann skora geggjað mark fyrir Liverpool: Ný stjarna fædd á Anfield Enski boltinn „Margir sem voru tilbúnir að koma honum fyrir kattarnef fyrir mig“ Íslenski boltinn „Hættiði að henda dildóum inn á völlinn“ Körfubolti Eigandi Newcastle gæti hjálpað Liverpool að kaupa Isak Enski boltinn Son verður sá dýrasti í sögunni Enski boltinn Lars Lagerbäck lenti í slysi og kemur ekki til Íslands Fótbolti „Sagt að mér gæti blætt út“ Sport Stuðningsmönnum danska liðsins ekki hleypt inn í Svíþjóð Fótbolti Frank Mill er látinn Fótbolti Fleiri fréttir Sigtryggur Arnar í mjög fámennan hóp í sögu landsliðsins „Hættiði að henda dildóum inn á völlinn“ Stórskotasýning Sigtryggs dugði ekki til sigurs Trúðurinn Arenas í vondum málum eftir handtöku Grindavík fær leikstjórnanda frá Grikklandi Stórt tap á Ítalíu Ísland mátti þola stórt tap Luka framlengir til þriggja ára í Los Angeles Fékk vægt áfall: „Með fullt af missed calls“ Stjórnendur NBA reyna að sannfæra Real Madrid og fleiri forrík félög KR sækir ungan bakvörð „Sýna að maður eigi það skilið“ Segir að þeim besta í heimi sé skítsama Álftanes bætir Bandaríkjamanni við hópinn „Númer eitt, tvö og þrjú að knúsa þau sem mest“ Callum Lawson aftur til Valsmanna Þrír verða heima meðan landsliðið fer til Ítalíu Skora á KKÍ að sniðganga Ísrael: „Íþróttahreyfingin ekki undanskilin ábyrgð“ Semple til Grindavíkur NBA stjarna sökuð um að stela tugum milljóna frá spilavítum Gamall Stjörnumaður kemur aftur til Íslands og semur við Álftanes Kynlífsleikfangi hent inn á völlinn í miðjum leik „Erum að einblína á það sem er að gerast á vellinum“ Í þrjátíu mánaða fangelsi fyrir að hrella Caitlin Clark Bað hennar í íþróttahúsinu þar sem allt byrjaði Mario fer ekki á EM – fimm dottnir úr hópi Íslands Gjörbreyttur Luka hefur tekið á því í ræktinni NBA reynslubolti handtekinn fyrir ávísunarfals LeBron hitti umboðsmann Jokic í Frakklandi Landsliðsmenn buðust til að ræða við Craig: „Var ekki að fara grátbiðja hann í annað sinn“ Sjá meira