Skoðun

Óstöðugleiki krónunnar vandamál

Ingólfur Bender skrifar
Stöðug og góð rekstrarskilyrði eru lykilforsendur vaxtar iðnfyrirtækja líkt og annarra fyrirtækja en með stöðugleikanum er skotið rótum undir langtíma hagvöxt og aukna velmegun hér á landi til hagsbóta fyrir íslensk heimili. Miklar sveiflur í íslensku efnahagslífi eru því ljóður á því umhverfi sem við bjóðum íslenskum fyrirtækjum. Ein birtingarmynd þessa óstöðugleika er miklar sveiflur í gengi krónunnar en þær sveiflur eru bæði búnar að vera orsök og afleiðing mikilla hagsveiflna hér á landi um langt árabil.

Gengi krónunnar hækkaði um ríflega 18% í fyrra sem er mesta hækkun gengis hennar á einu ári sem mælst hefur hér á landi. Það sem af er þessu ári hefur hún hækkað um ríflega 9% sem er nær fimm sinnum meiri hækkun en mældist á sama tíma í fyrra. Rifja má upp að á árinu 2008 lækkaði gengi krónunnar um ríflega 44%. Þessar tölur sýna glögglega þann mikla óstöðugleika sem krónan hefur bæði endurspeglað og verið rótin af í íslensku efnahagslífi á ekki lengri tíma en tæpum áratug. Sveiflan hefur gjörbreytt samkeppnisstöðu íslenskra fyrirtækja gagnvart erlendum fyrirtækjum. Slíkar öfgakenndar sveiflur í samkeppnisstöðu fyrirtækja eru afar slæmar fyrir framþróun fyrirtækja hér á landi, hag heimilanna og vöxt hagkerfisins í heild.

Viðbrögð margra iðnfyrirtækja sem og annarra sem helst eru að keppa við erlend fyrirtæki í gerbreyttri samkeppnisstöðu eru að flytja starfsemi annað, að hluta eða öllu leyti. Í mörgum öðrum tilfellum sverfur þróunin að markaðshlutdeild og umsvifum fyrirtækjanna til hagsbóta fyrir erlenda keppinauta. Fáar hindranir eru fyrir fyrirtæki til að mynda í hugbúnaðargerð og upplýsingatækni að færa starfsemina úr landi og sjáum við nú merki þess að gengisþróunin er farin að hafa áhrif á umsvif þessara fyrirtækja hér á landi sem og mörg önnur fyrirtæki. Við þetta tapast vel launuð störf og fjölbreytt flóra íslenskra fyrirtækja sem nauðsynleg er heilbrigðu atvinnulífi.

Uppbygging fjölbreytts iðnaðar hér á landi undanfarna áratugi er í hættu vegna hraðrar styrkingar krónunnar síðustu misseri. Þróunin heggur skarð í íslenskt efnahags- og atvinnulíf sem er dýrt m.t.t. langtíma hagvaxtar og skilar sér ekki aftur nema á löngum tíma og að því tilskyldu að hér séu sköpuð góð og stöðug rekstrarskilyrði.

Hagstjórnaraðgerðir þarf til að tryggja betri stöðugleika í umhverfi fyrirtækja hér á landi. Lykilatriði er að stjórn opinberra fjármála og peningamála sé öflug og samstiga í átakinu gegn ofþenslu, efnahagslægðum og óstöðugleika hér á landi. Einnig þarf að tryggja að fyrirkomulag stjórntækja efnahagsmála og þá ekki sýst peningamála, í ljósi núverandi endurskoðunar á því sviði, sé með þeim hætti að það geti sem best tryggt stöðugleikann.

Höfundur er hagfræðingur Samtaka iðnaðarins.




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×