Kaldrifjuð líkamsárás endaði í morði Ritstjórn skrifar 8. júní 2017 23:45 Hin grunuðu voru leidd fyrir dómara í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur. Karlmennirnir fimm voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 23. júní en konan viku skemur.
Einn hinna grunuðu í manndrápsmálinu í Mosfellsdal, Sveinn Gestur Tryggvason, heyrist á upptöku á símtali til Neyðarlínunnar hreyta ókvæðisorðum að hinum látna um meinta fíkniefnaskuld. Á sömu upptöku heyrast hljóð frá Arnari Jónssyni Aspar sem gefa til kynna að hann sé enn á lífi, en hann lét lífið eftir árásina. Sveinn, sem er náinn vinur hins látna, hringdi sjálfur á Neyðarlínuna og óskaði eftir sjúkrabifreið að heimili Arnars, Æsustöðum í Mosfellsdal.Nýkomin úr myndatöku Það var um hálf sjö á miðvikudag sem lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um hrottafengna árás í Mosfellsdal. Þegar lögreglu bar að garði á Æsustöðum stóðu tveir menn yfir hinum látna, þeir Sveinn Gestur og Jón Trausti Lúthersson, sá síðarnefndi var að tala í símann en Sveinn Gestur hafði hafið endurlífgun. Arnar Jónsson Aspar og unnusta hans eignuðust dóttur þann 27. maí síðastliðinn. Á miðvikudag, aðeins nokkrum klukkustundum fyrir árásina, fór parið með dóttur sína í myndatöku eins og oft tíðkast með nýfædd börn. Samkvæmt upplýsingum frá fjölskyldunni eru þessar ljósmyndir þeim einstaklega dýrmætar nú.Arnar Jónsson Aspar heitinn og Heiðdís Helga Aðalsteinsdóttir.Dóttirin unga var sofandi á meðan árásin átti sér stað en móðir hennar þurfti að horfa upp á misþyrmingar á manni sínum. Foreldrar hins látna og afi unnustunnar urðu einnig vitni að árásinni. Árásin hefur verið fjölskyldunni mikið áfall en nánustu aðstandendur unnustunnar gagnrýndu harðlega í samtali við Fréttablaðið að í gær hafi konunni ekki verið veitt nein áfallahjálp. Hún fékk heimsókn frá presti en árásin stendur henni ljóslifandi fyrir sjónum og hjálp fagmanns sé nauðsynleg. Ljósmóðir kom á heimilið til að vitja dótturinnar en hún bæði nærist vel af móðurmjólk og sefur. Tengdafaðir Arnars segir málið skelfilega sorglegt.„Þau voru svo ástfangin og hamingjusöm, glöð og ánægð. Framtíðin blasti við þeim.“Einn hinna handteknu leiddur fyrir dómara í dag.Sex hafa verið úrskurðuð í gæsluvarðhald grunuð um að hafa orðið Arnari Jónssyni Aspar að bana á miðvikudagskvöld. Fólkið kom á tveimur bifreiðum að heimili Arnars að Æsustöðum í Mosfellsdal rétt eftir klukkan sex síðdegis, bankaði upp á og veittist að Arnari með barsmíðum og spörkum fyrir utan heimili hans. Bráðabirgðaniðurstöður krufningar gefa ekki fullnægjandi svör við því hver dánarorsök Arnars er en hann var með mikla áverka víðsvegar um líkamann sem taldir eru hafa haft samverkandi áhrif sem leiddu til dauða hans. Á meðal áverka sem Arnar hlaut við árásina eru rifbeinsbrot, tungubein hans var brotið og þá var hann með áverka á hálsi sem benda til þess að hann hafi verið tekinn hálstaki. Það kemur heim og saman við frásögn vitna af atburðinum.Slepptu ekki fyrr en hann var meðvitundarlaus Vitni að árásinni segja Arnar hafa fallið í jörðu strax í upphafi árásarinnar en síðan komist aftur á fætur og náð sér í kústskaft úr járni sem hann notaði til að reyna að verjast fólkinu. Hann hafi meðal annars notað kústskaftið til að berja í bifreiðar árásarmannanna. Við þá mótspyrnu Arnars flúði hluti árásarmannanna af vettvangi. Samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins hélt árásin þó áfram. Vitni bera að einn hinna grunuðu, Jón Trausti Lúthersson, hafi þá náð kústskaftinu af Arnari og barið hann. Arnar hljóp þá í burtu en rann og datt á grúfu. Vitni segja að þá hafi einn hinna grunuðu, Sveinn Gestur Tryggvason, stokkið á bak Arnars og tekið hann hálstaki með vinstri hendi. Hann hafi svo barið Arnar í andlitið með hinni hendinni. Vitni að árásinni, sem Fréttablaðið hefur heimildir fyrir að séu meðal annars móðir Arnars, hafi þá öskrað á mennina að sleppa honum en þeir ekki gert það fyrr en þeir gerðu sér grein fyrir að hann var meðvitundarlaus.Lögregla að störfum á vettvangi.Nokkur símtöl bárust Neyðarlínunni vegna árásarinnar í gær. Í einu þeirra kynnti Sveinn Gestur sig með nafni og tilkynnti að senda þyrfti sjúkrabíl að Æsustöðum. Í símtalinu má heyra þegar Sveinn leggur símann frá sér og öskrar ókvæðisorð að Arnari um fíkniefnaskuld en Arnar lá þá meðvitundarlaus á jörðinni. Í símtalinu heyrast hljóð frá Arnari sem gefa til kynna að hann hafi þá verið enn á lífi. Samkvæmt upplýsingum blaðsins réðst Sveinn einnig á Arnar fyrir þremur vikum vegna meintrar fíkniefnaskuldar.Nabakowski-bræðurnir í Héraðsdómi Reykjavíkur þegar skotárásmál sem þeir hlutu ríflega 30 mánaða fangelsisdóm í var tekið fyrir.Fjölskylda Arnars og unnusta þvertaka fyrir að hann hafi verið í fíkniefnaneyslu. Það hafi verið liðin tíð. Ef um fíkniefnaskuld sé að ræða hljóti hún að vera frá fornu fari.Sveinn reyndi endurlífgun Þegar lögreglu bar að garði stóð Jón Trausti yfir hinum látna en Sveinn, sem er náinn vinur Arnars, var að reyna endurlífgun. Við gatnamót Æsustaðavegar og Röðulsvegar var Ásta Hrönn Guðmundsdóttir handtekin, en hún hafði keyrt burt á bifreiðinni sem hinir tveir komu á. Hinir þrír, Marcin Wieslaw Nabakowski, Rafal Marek Nabakowski og Rúnar Örn Bergmann, sem allir eru grunaðir um að hafa komið að árásinni, voru handteknir í bifreið á Vesturlandsvegi við Korputorg. Mennirnir fimm hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 23. júní en konan til 16. júní. Farið hafði verið fram á jafn langt gæsluvarðhald yfir þeim öllum.
Birtist í Fréttablaðinu Stórfelld líkamsárás í Mosfellsdal Mest lesið Inga Sæland hellti sér yfir Sigríði Andersen Innlent Logi fordæmir ummæli Jóns Gnarr um Vísi Innlent Kona réðst á pizzusendil sem vildi fá símann sinn aftur Innlent Telja sig vita hvernig maðurinn lést Innlent „Algjört þjófstart á sumrinu“ Innlent Létu Cassie lesa upp kynferðisleg skilaboð til Diddy Erlent Rússar segja Selenskí aumkunarverðan trúð Erlent Hestamenn láta tæpa hálfa milljón stöðva sig Innlent Ófremdarsástand og íbúum haldið í heljargreipum Innlent Borgin rukkar hestamenn og þeir hætta við reiðina Innlent Fleiri fréttir Segir Ísland hafa burði til að geta orðið fyrirmyndarríki í fangelsismálum Setja rúma tvo milljarða í stækkun leikskóla Umfangsmeiri bankasala og áfengi á íþróttaviðburðum Fljúgandi trampólín fauk á bíla í Grafarvogi Borgin verði ítrekað af viðburðum vegna gjaldtöku Telja sig vita hvernig maðurinn lést Nýja göngubrúin yfir Sæbraut fer upp í næstu viku Logi fordæmir ummæli Jóns Gnarr um Vísi Vilja aðra tillögu í stað Völugötu sem átti að koma í stað Bjargargötu „Algjört þjófstart á sumrinu“ Úlfari var boðin staða lögreglustjóra á Austurlandi Yfirmaður herafla NATO á Íslandi Hestamenn láta tæpa hálfa milljón stöðva sig Inga Sæland hellti sér yfir Sigríði Andersen Lögreglustjórafélagið fjallar um starfslok Úlfars Enn þjarmað að Flokki fólksins vegna styrkjamálsins Hægir verulega á fjölgun erlendra ríkisborgara Borgin rukkar hestamenn og þeir hætta við reiðina Kaupa frekar gervigreindartónlist í þætti en frumsamið efni Laupur stelur senunni í Árbæjarlaug Bein útsending: Ísland og Norðurslóðir í nýjum heimi – Ógnir og öryggi, áskoranir og tækifæri Kona réðst á pizzusendil sem vildi fá símann sinn aftur Enn einn skjálftinn austan við Grímsey Vara við bikblæðingum á Bröttubrekku Flugleiðir á barmi gjaldþrots gátu ekki haldið Cargolux Verðhækkanir varpa skugga á grillsumarið mikla Isavia fær áheyrn um hvort reka hafi mátt mann vegna aldurs Laupur vekur mikla athygli sundlaugagesta í Árbæjarlaug Fórnuðu gömlu húsi fyrir slökkviliðsæfingu Telur líkur á að starfslok Úlfars tengist útlendingapólitík Sjá meira