

„Við Íslendingar höfum verið svo heppnir að hér á landi sjást nánast aldrei vopnaðir lögreglumenn og ráðamenn geta farið ferða sinna án lífvarða.
En með atburði síðastliðins árs í Evrópu í huga finnst mér skiljanlegt að viðbúnaðarstig lögreglu sé aukið á stórum viðburðum hér á landi í sumar. Annað væri að mínu mati óábyrgt," segir Tómas Guðbjartsson læknir.

Þetta er enda síst til þess fallið að auka öryggistilfinningu fólks. Hver vill vera að spóka sig þar sem lögreglan telur hættu á skotbardögum? Og fælingarmátturinn á terrorista, sem ég held nú að hafi engan áhuga á okkur þar sem vart er hægt að hugsa sér ómerkilegra skotmark en Ísland, er enginn.
Byssur eru ögrun í eðli sínu og svona stælar eru líklegri til þess að framkalla ofbeldi frekar en að koma í veg fyrir það. Svo má alveg velta því fyrir sér hvort íslenskir lögreglumenn hafi yfirleitt andlegan þroska og þá yfirvegun sem þarf til þess að það megi treysta þeim fyrir hlaðinni byssu,“ segir Þórarinn Þórarinsson blaðamaður.

Mer þykir það engu að síður skelfileg staðreynd og óþægilegt að fá þessa áminningu að það er enginn óhultur fyrir voðaverkum eins og þeim sem við höfum orðið vitni af í okkar nágranna löndum," segir Daníel Örn Hinriksson hárgreiðslumaður.
„Mín skoðun er sú að þetta verði að vera faglegt mat lögreglunnar. Við verðum þá bara að venjast breyttum heimi. En þetta er auðvitað mjög óþægilegt," segir Sirrý Hallgrímsdóttir ráðgjafi.

Samt sem áður held ég að þegar tekin er ákvörðun um það sem mér finnst vera meiriháttar stefnubreyting, þurfi að eiga sér stað umræða, ekki síst á Alþingi.
Lögreglan er auðvitað að reyna að gera sitt besta en hér er ekki um að ræða átak í að sekta bílstjóra sem hafa lagt illa og ólöglega á stórviðburðum, heldur breyting á ásýnd samfélagsins. Það er mín skoðun að við eigum að forðast vopnaburð lögreglunnar eins lengi og mögulegt er.
Ég er ekki hrifinn af þessu. Telji lögreglan mikla hætti yfirvofandi, þá verður bara að segja það," segir Greipur Gíslason ráðgjafi.
Vill tryggja skjót viðbrögð
Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri hefur bent á að sérsveitarmenn séu alltaf vopnaðir en munurinn nú sé að vopnin séu sýnileg.
„Þeir sem hafa fylgst með fréttum sjá það að það eru ítrekað myndir af sérsveitarmönnum vopnuðum í alls konar verkefnum. Þeir eru ekki meira vopnaðir í dag. Þannig að þessi ráðstöfun, að setja vopnin utanklæða með þessum hætti er til að tryggja skjót viðbrögð ef eitthvað kemur upp á í mannþröng. Þá þurfa þeir að geta verndað borgarana ef eitthvað kemur upp á, í stað þess að hörfa og sækja vopnin í geymslur eða lögreglubílana sem eru kannski einhvers staðar frá þeim. Þar eru mínútur sem kannski skipta máli upp á líf eða dauða,“ segir Haraldur.
Jæja-hópurinn hefur boðað til mótmæla vegna vopnaburðar á fjöldasamkomum. Mótmælin, sem eru undir yfirskriftinni Fokk the Glock, verða á Austurvelli í dag og hefjast klukkan 11.
Á sérstakri Facebook-síðu sem heldur utan um mótmælin segir að hópurinn mótmæli harðlega vopnaburði íslensku lögreglunnar og sérsveitarmanna á almannafæri, á 17. júní 2017 sem og alltaf.
Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri hefur bent á að sérsveitarmenn séu alltaf vopnaðir en munurinn nú sé að vopnin séu sýnileg.
„Þeir sem hafa fylgst með fréttum sjá það að það eru ítrekað myndir af sérsveitarmönnum vopnuðum í alls konar verkefnum. Þeir eru ekki meira vopnaðir í dag. Þannig að þessi ráðstöfun, að setja vopnin utanklæða með þessum hætti er til að tryggja skjót viðbrögð ef eitthvað kemur upp á í mannþröng. Þá þurfa þeir að geta verndað borgarana ef eitthvað kemur upp á, í stað þess að hörfa og sækja vopnin í geymslur eða lögreglubílana sem eru kannski einhvers staðar frá þeim. Þar eru mínútur sem kannski skipta máli upp á líf eða dauða,“ segir Haraldur.
Mótmæla byssunum
Á sérstakri Facebook-síðu sem heldur utan um mótmælin segir að hópurinn mótmæli harðlega vopnaburði íslensku lögreglunnar og sérsveitarmanna á almannafæri, á 17. júní 2017 sem og alltaf.
Sara Óskarsson, meðlimur í Jæja-hópnum, segir Ísland þekkt fyrir að vera friðsælt land. „Okkur finnst stinga mikið í stúf við anda og yfirbragð lýðveldishátíðar þjóðarinnar að lögreglan sé allt í einu mætt með Glock 17 fyrir allra augum.“