Samstarfssamningur milli Heklu og Söru Bjarkar undirritaður Finnur Thorlacius skrifar 13. júní 2017 10:57 Sara Björk undirritar samninginn við Heklu.
Sara Björk Gunnarsdóttir, Þýskalands- og bikarmeistari með Wolfsburg og landsliðskona í knattspyrnu, undirritaði um helgina samstarfssamning við HEKLU. Sara Björk, sem mætir ásamt liðsfélögum sínum, landsliði Brasilíu á Laugardalsvelli í kvöld, áritaði myndir og keppnistreyjur fyrir hjá HEKLU síðastliðinn laugardag, auk þess sem hún spjallaði við gesti og gangandi. „Við erum afar stolt af íslensku fótboltastelpunum okkar og höfum mikla trú á þeim. Við erum því afar ánægð með samstarfssamninginn við Söru Björk sem er frábær fyrirmynd,“ segir Jóhann Ingi Magnússon sölustjóri Volkswagen. Samstarfsamningurinn felur í sér margvíslegt samstarf þessara tveggja aðila, en megintilgangurinn er engu að síður beinn og óbeinn stuðningur við Söru Björk. HEKLA telur enda mikilvægt að styðja við íslenska kvennaknattspyrnu og íslenskar knattspyrnukonur. Sara Björk er sannur leiðtogi innan vallar sem utan og er fyrirmynd fjölmargra. Með stuðningi sínum vonast HEKLA til að stuðla að áframhaldandi frábærum árangri Söru Bjarkar og félaga hennar. „Það er mér mikil ánægja að geta kynnt samstarf við HEKLU á Íslandi. Ég keyri um á Volkswagen út í Þýskalandi og nú líka þegar ég er hérna á Íslandi,“ segir Sara Björk Gunnarsdóttir og hvetur alla til að mæta á völlinn í kvöld til að horfa á Ísland taka á móti Brasilíu. HEKLA býður Söru Björk velkomna í Volkswagen fjölskylduna á Íslandi og hlakkar til samstarfsins í framtíðinni. Áfram Ísland!Sara Björk og ungur aðdáandi.
Mest lesið Gefa út gula viðvörun fyrir allt landið Veður Trúnaði aflétt: Leigan hljóðar upp á 500 milljónir, ekki 1.500 Innlent „Trúi ekki öðru en að hún taki þetta til sín“ Innlent Starfsmaður leikskóla rekinn vegna atviks en foreldrar ekki látnir vita Innlent Trump „svindlaði“ í kosningum í Flórída Erlent Stofnun atvinnuveganna: Matvælastofnun og Fiskistofa lagðar niður Innlent „Við megum vera vond við börn“ Innlent „Þið komið ekki til Íslands til að brjóta af ykkur“ Innlent Spá nú enn verra veðri á fimmtudag Veður Sendir líka fallhlífarhermenn til Mið-Austurlanda Erlent