Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Birgir Olgeirsson skrifar 13. október 2026 20:52 Auglýsingahlé eru orðin tíðari í Vikunni með Gísla Marteini. Stefán Eiríksson útvarpsstjóri segir ákveðið að hafa þau reglulegar þegar ljóst varð að lenging þáttarins væri komin til að vera. Vísir RÚV ákvað að hafa auglýsingahlé reglulega í Vikunni með Gísla Marteini þegar ljóst varð að lenging þáttarins væri komin til að vera. Útvarpsstjóri segir fleiri tónlistaratriði og áhorfendur í sal meðal ástæðna lengingarinnar. Heimilt er að rjúfa eigin framleiðslu RÚV með auglýsingum þegar þátturinn sjálfur nær klukkutíma.
Þetta kemur fram í svari Stefáns Eiríkssonar útvarpsstjóra við fyrirspurn Vísis um lengingu Vikunnar og auglýsingahlé í þættinum. Stefán segir auglýsingahlé ekki ný af nálinni í Vikunni. „Þátturinn Vikan með Gísla Marteini hefur verið rofinn með auglýsingum af og til í gegnum árin.“ Hins vegar hafi verið ákveðið að nýta heimildina reglulegar eftir að þátturinn lengdist. „Þegar ljóst var að sú lenging var komin til að vera var ákveðið að hafa auglýsingahlé inni í þáttunum með reglulegri hætti.“ Lengri þættir orðnir mun algengari Yfirlit yfir lengd Vikunnar sem Vísir hefur undir höndum nær frá janúar 2020 til febrúarloka 2026. Þar sést að skráðar lengdir þáttanna hafa aukist og að þættir yfir klukkutíma urðu mun algengari síðla árs 2025. Árið 2020 var enginn af 32 skráðum þáttum klukkutími að lengd. Árið 2024 náðu fimm af 25 þáttum klukkutíma og árið 2025 voru þeir tólf af 29. Fleiri tónlistaratriði og áhorfendur í sal eru meðal ástæðna þess að Vikan með Gísla Marteini hefur lengst, að sögn útvarpsstjóra.Vísir/Anton Brink Breytingin er sérstaklega skýr frá 24. október 2025. Allir níu þættirnir sem skráðir eru frá þeim degi til ársloka voru yfir klukkutíma. Fimm af sex skráðum þáttum í janúar og febrúar 2026 voru einnig yfir þeim mörkum. Í yfirlitinu er ekki tilgreint hvort auglýsingar séu taldar með í lengdinni. Tölurnar sýna því þróun skráðrar lengdar, en úr þeim verður ekki ráðið hver efnislengd hvers þáttar var án auglýsinga. Um ástæður lengingarinnar segir Stefán: „Þættirnir hafa þróast og tekið allnokkrum breytingum á síðustu tveimur árum, áhorfendur í sal hafa lífgað upp á þáttinn, tónlistaratriðum hefur fjölgað meðal annars á grunni nýrrar tónlistarstefnu RÚV og þátturinn í heild lengst m.a. vegna fyrrgreindra atriða.“ Auglýsingar teljast ekki með klukkutímanum Samkvæmt 7. gr. laga um Ríkisútvarpið er almennt óheimilt að rjúfa dagskrárliði með auglýsingum. Undanþágur eru þó fyrir íburðarmikla dagskrárliði og eigin framleiðslu sem er að minnsta kosti 60 mínútur að lengd. Stefán segir engar breytingar hafa orðið á auglýsingareglum RÚV og tekur fram að klukkutíminn verði að vera dagskrárefni. „Þegar rætt er um efnislengd er átt við lengd þáttarins sjálfs, án auglýsinga og dagskrárkynninga.“ Kappsmál og Landsleikarnir Í fyrirspurn Vísis var einnig borin undir Stefán ábending um að Kappsmál hefðu verið sýnd án auglýsingahléa þótt þættirnir væru lengri en klukkutími, en að auglýsingahlé væru í nýja spurningaþættinum Landsleikunum. Lengdir einstakra Kappsmálaþátta á vef RÚV staðfesta að þeir hafa farið yfir klukkutíma. Fyrsti þáttur síðasta hausts er til dæmis skráður 72 mínútur og sá næsti 71 mínúta. Kappsmál eru þar sögð framleidd af Skot í samstarfi við RÚV. Klukkutímalengd Vikunnar opnar fyrir auglýsingahlé inni í þættinum. Auglýsingar og dagskrárkynningar teljast ekki með þegar lengdarskilyrðið er metið.Vísir/Anton Brink Stefán fjallar ekki sérstaklega um þessa tvo þætti í svarinu. Um nýtingu heimildarinnar til auglýsingahléa segir hann almennt: „Sú heimild er ekki alltaf nýtt og þar ráða ýmis sjónarmið. Þættir henta misjafnlega til rofs og ýmislegt annað getur komið til.“ Áætlar lægri auglýsingatekjur Stjórnvöld hafa boðað breytingar sem eiga að draga úr umsvifum RÚV á auglýsingamarkaði. Í frumvarpsdrögum sem kynnt voru 25. september er meðal annars lagt til að tekjur af auglýsingum umfram 2,8 milljarða króna verði dregnar frá fjárveitingu til félagsins. Fjárhæðin verði endurreiknuð með verðlagsbreytingum. Ráðuneytið vísar jafnframt til viðauka við þjónustusamninginn 2024–2027 um minni umsvif RÚV á auglýsingamarkaði. Stefán vísar til þróunar heildarauglýsingatekna í svari sínu: „Hvað varðar umsvif RÚV á auglýsingamarkaði má geta þess að heildartekjur RÚV af auglýsingum hafa farið minnkandi undanfarin ár og gerir áætlun ársins ráð fyrir 5-7% raunlækkun auglýsingatekna frá fyrra ári.“
Ríkisútvarpið Auglýsinga- og markaðsmál Fjölmiðlar Tengdar fréttir Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Tómas Þór Þórðarson, varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins, gagnrýndi fjölmiðlaáform Loga Einarssonar ráðherra harðlega á Alþingi í dag. Hann kallaði fyrirhugað tekjuþak á RÚV „gerviþak“ og sagði áformin ekki verða til þess að nýr sjónvarpsfréttatími kæmi til sögunnar. 7. október 2026 14:28 Mest lesið „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Innlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Innlent Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku Innlent „Tíminn er á þrotum“ Erlent „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Innlent „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Innlent Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Innlent Fleiri fréttir „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Bein útsending: Kynnir fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Tíst Ólafs Ragnars hafi verið mun alvarlegra „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Sjá meira
Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Tómas Þór Þórðarson, varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins, gagnrýndi fjölmiðlaáform Loga Einarssonar ráðherra harðlega á Alþingi í dag. Hann kallaði fyrirhugað tekjuþak á RÚV „gerviþak“ og sagði áformin ekki verða til þess að nýr sjónvarpsfréttatími kæmi til sögunnar. 7. október 2026 14:28