Ef Gillz safnar rúmlega hálfri milljón mun Auddi ganga um með hárkollu í mánuð Stefán Árni Pálsson skrifar 26. júní 2017 13:00 Steindi, Auddi og Egill eru umsjónarmenn þáttarins.
Egill Einarsson, betur þekktur sem Gillz, bauð Auðunni Blöndal 550.000 krónur fyrir að vera með hárkollu allan sólahringinn í heilan mánuð í útvarpsþættinum FM95Blö á föstudaginn. Egill kom fram með spurninguna í dagskráliðnum Myndir þú fyrir pening en hann ætlar greinilega lengra með málið. Hann spurði fylgjendur sína út í málið á Twitter og sagði:„Smelltu á LIKE ef þú værir til í að millifæra 1000kr fyrir að sjá @Auddib með hárkollu hvert sem hann fer í einn mánuð!“ Smelltu á LIKE ef þú værir til í að millifæra 1000kr fyrir að sjá @Auddib með hárkollu hvert sem hann fer í einn mánuð! #kollublö— Egill Einarsson (@EgillGillz) June 23, 2017 Þegar þessi frétt er skrifuð hafa 819 manns líkað við færsluna og upphæðin er því komin. Lífið hafði samband við Egil og segir hann að til standi að koma kollunni á Audda Blö. „Ég er bara að finna lausn á hvernig við hefjum söfnunina en ef það safnast 550 þúsund þá þarf hann að vera með hárkollu í mánuð,“ segir Egill og bætir því við að peningurinn fari óskiptur til góðgerðamála. „Lágmarkið er 550.000 en vonandi náum við meira þar sem þetta fer í gott málefni,“ segir Egill en Auðunn Blöndal er klár í slaginn og vill bara fá sem mest til að gefa til góðgerðamála. Hér að neðan má hlusta á umræðuna í síðasta þætti af FM95BLÖ en hún hefst þegar 51:30 mínútur eru liðnar af þættinum.
Mest lesið Frægustu mágar landsins Lífið Ocasio-Cortez á lausu Lífið Selja útsýnishús með saunu og sjóvatnspotti Lífið Pálmi Kormákur og Guðrún nýtt par Lífið Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Lífið Þurrsjampó eru ekki öll eins, svona velur þú réttu vöruna fyrir þitt hár Lífið samstarf Pylsur eins og þú hefur líklega aldrei grillað þær áður Lífið samstarf María Hrund á lista Vogue yfir þau best klæddu Tíska og hönnun Dottinn í það á ný: „Ég var edrú í sjö ár“ Lífið Konan sem malaði Stebba og Eyfa á leið til landsins Tónlist Fleiri fréttir OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Pálmi Kormákur og Guðrún nýtt par Selja útsýnishús með saunu og sjóvatnspotti Usher þvertekur fyrir klónið „Það er engin skömm í krabbameininu“ Dottinn í það á ný: „Ég var edrú í sjö ár“ Einstakt einbýlishús á 235 milljónir í Garðabæ Gugga á Þjóðhátíð: „Er þetta leigubíll? Nei, þetta er pó-pó“ Urður yfirgefur Kastljós Aubrey Plaza orðin mamma Lenti í mótorhjólaslysi daginn eftir gleðigönguna Raye og Jordan ástfangin í rússíbana Stjörnulífið: „Ég elska að vera hommalingur“ Perez Hilton þarf að fara í aðgerð eftir sjálfsskaða í beinu streymi á TikTok Þegar Davíð hafði afskipti af hjónabandi Ólafs og Dorritar Fræg feðgin snæddu kvöldmat á Horninu Minnast almyrkvans 1954: „Mér fannst þetta alveg nauðaómerkilegt fyrirbæri“ Týndi bókstaflega röddinni eftir áratugi af aga Krakkatía vikunnar: Hundar, ber og ælubogi Myndaveisla frá Gleðigöngunni: Borgarstjóri, biskup og risastór flæmingi Brekkusöngur á jafnsléttu hápunkturinn Euphoria-stjörnur á Íslandi Örlaganótt á Kiki varð að ást um ókomna tíð Fréttatía vikunnar: Úkraína, hoppukastali og George R. R. Martin Þetta táknar flæmingi Páls Óskars: „Kommentakerfið logar af fólki sem talar eins og 1986“ „Við nýtum tækifærið og ræðum lífið og tilveruna“ Héldu annað brúðkaup í leyni á sveitasetri í Surrey Sjá meira