Almyrkvi á sólu á Íslandi

Almyrkvi á sólu á Íslandi

Almyrkvi á sólu verður á Íslandi síðdegis 12. ágúst 2026. Almyrkvi verður þegar tunglið gengur á milli jarðarinnar og sólar þannig að það hylur algerlega sólina frá jörðu séð.

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Eftir almyrkvann – þakk­læti og stolt

Þegar myrkrið skall skyndilega á þann 12. ágúst, eins og slökkt hafði verið á ljósrofa, hugsaði ég óumflýjanlega til þess að undirbúningur okkar fyrir þessar tvær mínútur hófst fyrir rúmlega tveimur árum.

Skoðun
Fréttamynd

Bíll við bíl á Snæfellsvegi

Umferðin er farin að þyngjast á Vesturlandi en fólk virðist lagt af stað heim eftir almyrkvaferðalög. Löng bílaröð hefur myndast austan við Vegamót á Snæfellsvegi og við Borgarbyggð. 

Innlent
Fréttamynd

Bein út­sending: Al­myrkvi á sólu

Líkt og alþjóð veit mun almyrkvi á sólu verða á vestanverðu landinu í dag. Hægt verður að fylgjast með beinni útsendingu frá þessum atburði í spilaranum hér fyrir neðan.

Innlent
Fréttamynd

Vona að skýin víki fyrir sólinni eins og þau gerðu í Texas

Gestir á Eclipse tónlistarhátíðinni á Hellissandi eru öllu viðbúin en vongóð um að það sjáist til sólar á meðan sólmyrkva stendur. Þúsundir innlendra og erlendra gesta eru nú samankomnar á Hellissandi á tónlistarhátíðinni Iceland Eclipse. Berghildur Erla Bernharðsdóttir fréttamaður og Bjarni Einarsson tökumaður hafa rætt við gesti í dag.

Innlent
Fréttamynd

Loka Hval­fjarðar­göngunum ef um­ferð verður of mikil

Ef umferð snareykst í Hvalfjarðargöng gæti þurft að loka þeim tímabundið í dag. G. Pétur Matthíasson upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar segir umferð ganga vel og hún hafi dreifst vel síðustu daga. Hann eigi ekki endilega von á því að Vegagerðin muni þurfa að grípa til lokana en það geti gerst.

Innlent
Fréttamynd

Klukkan hvað þarf að vera kominn út til að missa ekki af almyrkvanum?

Almyrkvinn 12. ágúst 2026 gengur yfir vestasta og þéttbýlasta svæði landsins, yfir Vestfirði, Snæfellsnes, höfuðborgarsvæðið og Reykjanesskaga. Hann nemur fyrst land á Íslandi við Straumnesvita á Hornströndum sautján mínútur í sex að kvöld til en þar stendur hann yfir í tæpa eina og hálfa mínútu. Myrkvinn stendur lengst yfir við Látrabjarg eða í tvær mínútur og þrettán sekúndur. 

Innlent
Fréttamynd

Mann­fjöldinn á Vest­fjörðum marg­faldast vegna almyrkvans

Fjöldi fólks á Vestfjörðum margfaldast í dag þegar ferðamenn streyma á svæðið til að fylgjast með almyrkvanum. Mest er álagið á sunnanverðum fjörðunum en Hlynur Snorrason, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Vestfjörðum, segir viðbúnað ganga samkvæmt áætlun.

Innlent
Fréttamynd

Umferðarstýring gangi vel og öku­menn hlýði einstefnu

Arna Margrét Arnardóttir, formaður svæðisstjórnar Landsbjargar, er í Breiðuvík þar sem búið er að koma upp vettvangsstjórn fyrir björgunarsveitir á svæðinu. Hún segir morguninn byrja vel í umferðarstýringu. Einstefna er komin á. 

Innlent
Fréttamynd

Veg­far­endur gefi sér góðan tíma til ferða­laga í dag

Vegagerðin hefur tekið saman þær takmarkanir sem verða á vegum landsins vegna almyrkvans, síðdegis í dag miðvikudaginn 12. ágúst. Vegfarendur eru vegfarendur beðnir um að hafa í huga að búist er við mikilli umferð á vegum landsins, gefa sér góðan tíma til ferðalaga, skipuleggja sig vel og leggja tímanlega af stað.

Innlent
Fréttamynd

Fjór­falt fleiri lög­reglu­menn vakta Vest­firði

Á venjulegum miðvikudegi í ágúst væru sex lögreglumenn á vakt á öllum Vestfjörðum. Sem viðbragð við almyrkvanum 12. ágúst verður lögregluþjónum á vakt fjölgað um sextán sem er nánast fjórfalt á við venjulegan dag. Umferðarstýring verður víða og verður að hámarki þrjú þúsund bílum leyft að keyra vestur að Látrabjargi.

Innlent
Fréttamynd

Leita svara við aldargamalli ráð­gátu sólarinnar

Vísindamenn á vegum geimvísindastofnunar Bandaríkjanna, NASA, eru staddir hér á landi til að nýta almyrkvann á morgun með það að markmiði að rannsaka hvers vegna ysti lofthjúpur sólarinnar er margfalt heitari en yfirborð hennar. Fjórar myndavélar um borð í rannsóknarþotu NASA munu mynda kórónu sólarinnar úr fimmtán kílómetra hæð.

Innlent
Fréttamynd

Kveikt á götu­lýsingu í sól­myrkva á stofn­brautum

Í samráði við lögregluna og vegna umferðaröryggis verður kveikt á götulýsingu á stofnbrautum á höfuðborgarsvæðinu þar sem leyfður umferðarhraði er 60 kílómetrar á klukkustund eða meiri á meðan almyrkvi á sólu gengur yfir á morgun, 12. ágúst.

Innlent