Heimferð ekki á dagskránni Ragnheiður Tryggvadóttir skrifar 17. júlí 2017 16:00 Guðrún Inga Sívertsen, varaformaður KSÍ og formaður landsliðsnefndar, er fararstjóri íslenska landsliðshópsins á EM í Hollandi. Hún segir einvalalið standa að öllum undirbúningi. mynd/Vilhelm
Guðrún Inga Sívertsen er fararstjóri íslenska liðsins á EM í Hollandi. Hún segir ótal hluti þurfa að ganga upp en finnur ekki fyrir stressi. Mikill hugur er í íslenska hópnum og á liðið ekki bókaða heimferð eftir riðilinn. Undirbúningur hefur staðið yfir frá því í haust þegar liðið tryggði sig í keppnina. Þá fór allt á fullt. En við höfðum auðvitað haft þetta bak við eyrað lengur, stefnan var alltaf að fara til Hollands,“ segir Guðrún Inga Sívertsen, varaformaður KSÍ og formaður landsliðsnefndar, en hún er fararstjóri íslenska landsliðshópsins á EM í Hollandi. Þetta er í þriðja sinn sem Guðrún Inga heldur utan um íslenska hópinn í lokakeppni EM og segist hún reynslunni ríkari. Handtökin séu mörg og margt þurfi að ganga upp. Hún finni þó ekki fyrir stressi. „Ég vil frekar kalla þetta tilhlökkun. Loksins er komið að þessu og við erum öll með fiðring í maganum,“ segir Guðrún Inga. „Markmið okkar er að hafa aðbúnaðinn eins góðan og mögulegt er fyrir stelpurnar. Þær eiga ekki að þurfa að bíða eftir neinu neins staðar. Við viljum hafa umgjörðina eins flotta og hægt er og þetta er heilmikið umstang. Liðsstjórar fóru út á undan liðinu með allan búnaðinn, meira en hundrað kassa af ýmiss konar dóti. Það fer einnig stór hópur af starfsfólki með liðinu út eða hátt í tuttugu manns. Það eru þjálfarar, sjúkraþjálfarar, læknir, fjölmiðlafulltrúi, liðsstjórar og „scouterar“ sem hafa það hlutverk að fara á milli og skoða hin liðin. Öryggisstjóri er einnig í hópnum og þá verður kokkur með okkur í nokkra daga til að brjóta upp matseðilinn og elda íslenskan fisk ofan í hópinn,“ segir Guðrún Inga. Starfsliðið kalli sig „Dökkbláa liðið“ þar sem það klæðist dökkbláum fötum en leikmennirnir ljósbláum. Það sé ekki síðri liðsandi hjá starfsliðinu og allir leggist á eitt. „Það er valinn maður í hverri stöðu og hrein unun að vinna með þessu fólki. Það hjálpast allir að og allir eru með sama markmið, að gera allt fyrir stelpurnar. Þær gefa svo mikið af sér og þá vilja allir gera enn meira. Það er mikil og jákvæð stemming í kringum liðið og mikill stuðningur frá þjóðinni við stelpurnar. Þær finna það vel og eru þakklátar fyrir það,“ segir Guðrún Inga.Liðið hefur æft stíft fyrir keppnina og ætlar sér alla leið.Hvað má alls ekki klikka? „Æfingavöllurinn þarf að vera í lagi og hótelin, maturinn verður einnig að vera í lagi og allar ferðir milli staða. Við erum með hollenskan aðstoðarmann sem UEFA útvegar okkur og höfum verið í samskiptum við hann síðustu vikur. Allir þurfa að vera á sömu blaðsíðunni og vita hvað hver er að gera og hvernig við viljum hafa hlutina. Í síðustu viku fór ég til Hollands og kíkti á öll hótelin sem við verðum á. Við verðum með „base camp“ eða heimastöð á hóteli í bænum Ermelo en degi fyrir leik förum við á hótel í þeim bæ þar sem leikirnir fara fram hverju sinni, það er í Tilburg, Doetinchem og Rotterdam. Eftir leiki fer hópurinn aftur á heimastöðina. Ástæðan er sú að í reglum UEFA segir að það megi ekki vera meira en 60 kílómetrar frá dvalarstað á leikvöllinn,“ segir Guðrún Inga. Á hótelinu er gert ráð fyrir afþreyingu fyrir liðið, hægt verður að grípa í spil og bækur, spila billjard og pílu. Þá getur hópurinn farið út að hjóla um nágrennið sem er mjög fallegt. Dagskráin sé reyndar stíf, æfingar á hverjum degi, fundir og meðferðir hjá sjúkraþjálfara. „Það verður þó einhver frítími. Fjölskyldur leikmanna verða margar hverjar úti að styðja liðið og hægt að verja smá tíma með þeim. Það verður enginn lokaður inni á hóteli. Við spiluðum æfingaleik við Holland í apríl og þá gisti allt liðið á hótelinu sem verður heimastöðin okkar. Við erum því aðeins búin að máta okkur við það og undirbúa okkur eins vel og við getum,“ segir Guðrún Inga og bætir við að liðið stefni á að komast áfram í keppni. „Auðvitað ætlum við áfram. Það er ekki gert ráð fyrir heimferð eftir riðilinn í dagskránni. Ef við dettum út þá verður það leyst þá og þegar.“
EM 2017 í Hollandi Mest lesið Slagsmálin tengd hrósi, ekki framhjáhaldi Lífið Tommi Steindórs og Hrafnhildur trúlofuð Lífið Munur er á manviti og mannviti Menning Fékk veipeitrun Lífið Fréttatía vikunnar: Ofbeldi unglinga, Spotify wrapped og Kærleikskúlan Lífið Ljósavinir fögnuðu í Sjálandi Lífið Vatn og brauð íslenskra fanga: Hvað elda menn í íslenskum fangelsum? Menning Einn áhrifamesti arkitekt samtímans látinn Tíska og hönnun Björk beinir skilaboðum til stjórnar RÚV Lífið „RÚV plís ekki vera gungur og aumingjar“ Lífið Fleiri fréttir Tommi Steindórs og Hrafnhildur trúlofuð Slagsmálin tengd hrósi, ekki framhjáhaldi Fékk veipeitrun Fréttatía vikunnar: Ofbeldi unglinga, Spotify wrapped og Kærleikskúlan Björk beinir skilaboðum til stjórnar RÚV Plötuðu Sigríði Andersen til að stíga í alvöru hundaskít Jólalegasti garðurinn í hverfinu og töff jólaskreytingar inni og úti „RÚV plís ekki vera gungur og aumingjar“ Kveður fasteignir fyrir kroppa Róandi skýjadansari er litur ársins 2026 Mortal Kombat-stjarna látin Hafði leitað árangurslaust að blóðföður sínum í áratugi Chanel og Snorri eiga von á syni Forritararnir borðuðu sveppina til að ná að vera aðeins lengur en hinir Stjórnmálamenn stigu trylltan dans í kjaftfullum Austurbæ „Ég er pínu meyr í dag“ Örlög Ísrael í Eurovision ráðast á aðalfundi sem hefst í dag Erum við of heimsk til að nota gervigreind? Þessi eru tilnefnd til íslensku bókmenntaverðlaunanna Fannar leitaði lengi að transbrauði „Mamma, ég gat þetta“ Opnar sig um kaupfíkn sem kviknaði þegar hún var sjö ára Gummi skíthræddur við Sigurjón Kjartans Þessi stóðu upp úr hjá Spotify í ár „Mig langar að elska þig alla daga, ævilangt“ „Lendir auðvitað í því að vera alltaf málaður upp sem voðalega vondur“ Siggi Ingvars og Alma Finnboga fjölga sér Talsmaður Hvíta hússins segir að Carpenter hljóti að vera heimsk Hræðilegra að syngja með Bítinu en að fara í fallhlífastökk Íslensk raunveruleikastjarna í Svíþjóð: „Þetta var fokking erfitt, sérstaklega fyrir líkamann“ Sjá meira