Jól

Jólabylgjan komin í loftið

Bjarki Sigurðsson skrifar
Þessi kona gæti verið að hlusta á Jólabylgjuna.
Þessi kona gæti verið að hlusta á Jólabylgjuna. Getty

Í dag eru 63 dagar í aðfangadag jóla og Jólabylgjan er komin í loftið. Tónlistarstjóri Bylgjunnar segir fjölda fólks hafa hringt inn síðustu daga og spurt hvenær stöðin færi í loftið.

Hlustendur Léttbylgjunnar munu nú aðeins heyra jólalög þegar þeir stilla inn þar sem útvarpsstöðin er orðin að Jólabylgjunni. Um er að ræða einn af boðberum jóla á Íslandi, líkt og þegar verslanir byrja að selja mandarínur eða þegar IKEA-geitin rís. 

Hér fyrir neðan er hægt að hlusta á Jólabylgjuna:

Bragi Guðmundsson, tónlistarstjóri Bylgjunnar, kynnti þetta í Bítinu á Bylgjunni í morgun. 

„Það eru margir sem eru að spyrja okkur hvenær við byrjum. Það er enginn að hafa samband við okkur og segja: „Ekki byrja svona snemma.“ Nú er bara kominn tími til. Ég meina, græna jólatertan er komin í búðir,“ sagði Bragi. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×