Dökkir lokkar ráðandi á kolli forsætisráðherra á ný Jakob Bjarnar skrifar 25. júlí 2017 11:38 Sumarleyfið ætlar að reynast Bjarna forsætisráðherra vel og lætur æskuþokkinn aftur á sér kræla.
Bjarni Benediktsson forsætisráðherra nýtur sumarsins sem aldrei fyrr og á Facebooksíðu sem helguð er störfum hans og lífi greinir Bjarni frá því að hann hafi gengið upp að Brúarskörðum og til baka í Úthlíð. Þar bankaði hann uppá hjá Birni bónda Sigurðssyni, og horfðu þeir saman á landsleik Íslands og Frakklands á dögunum.Fyrir skemmstu vöktu nýlegar myndir af Bjarna mikla athygli, þá fyrir þær sakir að forsætisráðherra var orðinn gráhærður. Reyndar var það fréttastofa RUV sem fyrst fjallaði um þetta athyglisverða fyrirbæri sem voru litabrigði í hári Bjarna; að forsætisráðherrann væri orðinn silfurrefur. Voru uppi miklar vangaveltur á samfélagsmiðlum um það hvort hann hafi látið lita á sér hárið, eða gleymt að lita hárið, nema Svanhildur Hólm, upplýsingafulltrúi forsætisráðherra sagði ekkert hæft í slíkum sögusögnum. Bjarni hafi farið í klippingu og við það létu svörtu lokkarnir undan hinu grásprengda undirlagi. Flóknara væri það nú ekki. Bjarni hafi ekki látið lita á sér hárið. Á nýlegri myndinni sem Bjarni birtir af sér í Úthlíð verður ekki betur séð en hinir dökku lokkar hafi náð yfirhöndinni að nýju og hann ekki lengur grár fyrir hærum; reyndar lítur Bjarni vel út og er útitekinn og glæsilegur sem aldrei fyrr. Og ekki að sjá að álagið í stóli forsætisráðherra sé að sliga hann nema síður sé.
Tengdar fréttir Bjarni Ben hefur ekki litað á sér hárið Hárlitur Bjarna Benediktssonar forsætisráðherra hefur verið á milli tannanna á fólki í dag en hann þykir hafa gránað töluvert. 23. júní 2017 16:15 Mest lesið „Á endanum snýst þetta um að giftast besta vini sínum“ Lífið Blönduðu áður óséðu efni frá aldamótum við upphitunaratriðið Lífið Krakkatía vikunnar: Dorrit, fjallkonan og lítilmenni Lífið Svona er stemningin á Þingvöllum í dag Lífið Nýir útvarpsþættir að norðan: „Ef eitthvað fer illa þá bara fer það illa“ Lífið Dóttir Obama í íslenskri hönnun Tíska og hönnun Fréttatía vikunnar: Kæra, Hafþór og Florencia Lífið Bein útsending frá Bergmáli á Þingvöllum Tónlist Gull og gimsteinar leynast víða Lífið Fólk streymi inn í þjóðgarðinn í rjómablíðu Lífið Fleiri fréttir „Á endanum snýst þetta um að giftast besta vini sínum“ Krakkatía vikunnar: Dorrit, fjallkonan og lítilmenni Blönduðu áður óséðu efni frá aldamótum við upphitunaratriðið Svona er stemningin á Þingvöllum í dag Fólk streymi inn í þjóðgarðinn í rjómablíðu Gull og gimsteinar leynast víða Nýir útvarpsþættir að norðan: „Ef eitthvað fer illa þá bara fer það illa“ Fréttatía vikunnar: Kæra, Hafþór og Florencia Anne Hathaway á von á sínu þriðja barni Bjórinn nefndur eftir lagi hljómsveitarinnar Kaleo Hilmir Snær og Vala í aðalhlutverkum í „öskugráum hjónaleik“ Búast við fimmtán gráðum og sól á Þingvöllum „Ég verð bara að gera það, hvort sem mér líkar betur eða verr“ Íhugaði meiðyrðamál vegna nafnlausra Facebook-færslna Leikkonan Margrét Helga Jóhannsdóttir er látin Hönnuðir nota blóm á mjög óvenjulegan hátt Opnar sig um sambandið við Harry Styles: „Mjög þung byrði og ekki eitthvað sem ég öfunda hann af“ Hvað eiga antisportistar að gera meðan HM stendur yfir? Barnastjarna úr Lilo&Stitch og The Ring látin Hvað veistu um... HM karla í fótbolta? Flúði Pútín og þurfti svo að glíma við MAST Sjötugar á TikTok og elska fíflaganginn Svaf til fóta eftir fyrstu sambandsslitin „Það reikna allir með að ég sé að nota þetta sem einhvern stökkpall“ Djömmuðu sem dauðasyndirnar sjö Hafþór Júlíus reynir að hafa uppi á manni „Okkur var nánast sópað út af dansgólfinu“ Tuttugu gellur á einu kvöldi Dorrit á trampólíni 24 Jump Street á leiðinni Sjá meira
Bjarni Ben hefur ekki litað á sér hárið Hárlitur Bjarna Benediktssonar forsætisráðherra hefur verið á milli tannanna á fólki í dag en hann þykir hafa gránað töluvert. 23. júní 2017 16:15