Sara og herbergisfélagi hennar, Rakel Hönnudóttir, voru þær einu í hópnum sem höfðu komið við sögu í öllum leikjum kvennalandsliðsins á stórmótum. Rakel kom inn á sem varamaður í öllum leikjunum í Finnlandi árið 2009 og spilaði í heildina 46 mínútur en Sara Björk, sem var þá 18 ára, byrjaði alla leikina.
Rakel var komin í mun stærra hlutverk á EM 2013 í Svíþjóð þar sem liðið gerði sér lítið fyrir og komst í átta liða úrslitin áður en það féll úr leik með 4-0 tapi fyrir Svíþjóð. Rakel spilaði hverja einustu mínútu á því móti og á nú 406 mínútur að baki fyrir landsliðið á stórmóti. Hún er í níunda sæti á listanum yfir flestar mínútur spilaðar en Rakel er að jafna sig á meiðslum og var því ekki notuð á móti Frakklandi.
Sara Björk komst í efsta sætið yfir flestar mínútur spilaðar á stórmóti eftir að spila allan leikinn á móti Frakklandi á þriðjudaginn. Hún hefur í heildina spilað 675 mínútur og fór upp fyrir fyrrverandi fyrirliðann Katrínu Jónsdóttur í Tilburg. Sara var tekin út af einu sinni á EM 2009 og einu sinni á EM 2013 en hefur annars alltaf spilað 90 mínútur.

Hafnfirðingurinn var efnilegur nýliði á stórmóti, aðeins 18 ára, þegar hún spilaði fyrst fyrir Ísland á stórmóti en er núna fyrirliði liðsins og besti leikmaður þess. Hún stendur fremst íslenskra knattspyrnukvenna en hún spilar fyrir WfL Wolfsburg sem er eitt besta lið í heimi og þá var hún tilnefnd á meðal bestu knattspyrnukvenna Evrópu fyrr á árinu.
Svona met er þó eitthvað sem hún er lítið að spá í: „Það nefndi þetta einhver við mig eftir leikinn í gær og ég sagði Söru frá þessu. Hún var bara „Ha?“ Við erum ekkert að pæla í þessu,“ sagði Rakel Hönnudóttir við Fréttablaðið á æfingu liðsins í gær.
Söru fannst tilfinningin eftir leikinn á móti Frakklandi núna en fyrir átta árum allt önnur: „Þetta er allt annað en fyrir átta árum. Maður var svekktur eftir lélega frammistöðu gegn Frakklandi þegar við mættum þeim í Finnlandi en nú labba ég af vellinum stolt. Ég horfði stolt upp í stúku og á leikmennina ótrúlega stolt,“ sagði Sara Björk.

1. Sara Björk Gunnarsdóttir 8
2. Dóra María Lárusdóttir 7
2. Katrín Jónsdóttir 7
2. Margrét Lára Viðarsdóttir 7
2. Rakel Hönnudóttir 7
6. Fanndís Friðriksdóttir 6
6. Guðbjörg Gunnarsdóttir 6
6. Hólmfríður Magnúsdóttir 6
6. Ólína Guðbjörg Viðarsdóttir 6
10. Dagný Brynjarsdóttir 5
10. Hallbera Guðný Gísladóttir 5
10. Harpa Þorsteinsdóttir 5
10. Sif Atladóttir 5
14. Glódís Perla Viggósdóttir 4
14. Katrín Ómarsdóttir 4
Flestar mínútur spilaðar fyrir Ísland á EM kvenna
1. Sara Björk Gunnarsdóttir 675
2. Katrín Jónsdóttir 621
3. Dóra María Lárusdóttir 611
4. Margrét Lára Viðarsdóttir 590
5. Guðbjörg Gunnarsdóttir 540
6. Hólmfríður Magnúsdóttir 520
7. Hallbera Guðný Gísladóttir 450
8. Sif Atladóttir 422
9. Rakel Hönnudóttir 406
10. Dagný Brynjarsdóttir 397
11. Ólína Guðbjörg Viðarsdóttir 394
12. Fanndís Friðriksdóttir 299
13. Edda Garðarsdóttir 270
13. Guðrún Sóley Gunnarsdóttir 270
15. Glódís Perla Viggósdóttir 217