„Líf markmannsins að vera tilbúinn alltaf“ Andri Broddason skrifar 11. október 2026 20:17 Cecilía Rán Rúnarsdóttir hefur staðið sig frábærlega í marki Íslands. Daniela Porcelli/Getty Images Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta er komið heim til Íslands fyrir seinni leikinn gegn Króatíu í undankeppni fyrir HM sem haldið er í Brasilíu á næsta ári. Ísland er í góðri stöðu fyrir seinni leikinn þar sem Ísland er með fjögurra marka forystu. „
Geggjað að vera komin heim og ánægð að vera komin með 4-0 forskot í næsta leik. Þetta eru tveir leikir þannig við þurfum áfram að halda fókus en ég er ánægð með frammistöðuna hjá liðinu,“ sagði Cecilia Rán Rúnarsdóttir, markmaður landsliðsins. Seinni leikurinn gegn Króatíu verður spilaður á þriðjudaginn á Laugardalsvelli. Klippa: Cecilía Rán fyrir seinni leikinn gegn Króatíu „Við vissum að við værum betra liðið en við þurftum að sýna þeim þá virðingu að mæta hundrað prósent í þennan leik og mér fannst við gera það. Ég er mjög ánægð að við náðum að nýta föstu leikatriðin og færin okkar.“ Þrátt fyrir að Ísland væri sterkara í leiknum þurfti Cecelia Rán að vera tilbúin í markinu. Þegar kallið kom þá var hún klár og náði að bægja hættunni frá. „Það er líf markmannsins að vera tilbúinn alltaf. Ég er vön því hjá Inter að fá kannski eitt skot á mig í leik og ég þarf að vera tilbúin í það. Það gerir góðan markmann að góðum markmanni.“ Cecilía Rán er búin að vera leikmaður Inter Milan í ítölsku úrvalsdeildinni í nokkur ár og virðist kunna vel við sig þar. „Við erum komnar í Meistaradeildina og ætlum okkur stóra hluti í ár. [Að komast í Meistaradeildina] var markmið sem klúbburinn var búinn að hafa síðan okkur byrjaði að ganga vel. Þetta var geggjað og ég er ótrúlega stolt af liðinu.“ Þrátt fyrir að íslenska liðið sé með góða forystu þá er viðureignin ekki búin. Cecilía Rán er hógvær og segir liðið þurfa samt að mæta klárt í leikinn. „Við vitum að þær hafa engu að tapa þannig að þær munu pressa mikið og gefa allt í leikinn en við erum með gott lið og ætlum að spila okkar leik. Ef við gerum það þá siglum við þessu heim.“ Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan.
Landslið kvenna í fótbolta HM 2027 í Brasilíu Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Enski boltinn Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Segir félagið í skítnum Enski boltinn Fleiri fréttir Athletic Club - Real Sociedad | Heldur Orri áfram að skora á Spáni? „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Moreira stal senunni í slagnum um Mílanó og hélt Alberti á toppnum Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Andreulegt upplegg í sigri Anderlecht Dramatík í stórleiknum í Þýskalandi Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Njarðvík sagði upp samningi við Smit Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Sjá meira