Finnar sigruðu í tvíframlengdum leik Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 3. september 2017 19:24 Lauri Markkanen hélt áfram að spila vel fyrir Finna Vísir/getty
Finnar mörðu 90-87 sigur á Pólverjum í tvíframlengdum leik í lokaleik dagsins í A-riðli á Evrópumótinu í körfubolta. Lokamínútur venjulegs leiktíma voru æsispennandi. Lauri Markkanen fékk þrjú vítaskot þegar 15 sekúndur voru eftir og setti þau öll niður og minnkaði forystu Pólverja niður í 2 stig. Markkanen var svo aftur á ferðinni fjórum sekúndum seinna þegar hann stal boltanum og gerði sér lítið fyrir og jafnaði leikinn með troðslu þegar 8 sekúndur lifðu á klukkunni. Hvorugu liði tókst að stela sigrinum á síðustu metrunum og þurfti því að grípa til framlengingar. Leikurinn var áfram í járnum í framlengingunni. Anthony Slaughter setti niður tveggja stiga skot þegar 13 sekúndur voru eftir, en Markkanen jafnaði leikinn fyrir heimamenn á síðustu sekúndunum og þurfti aftur að framlengja. Heimamenn náðu að kreista fram auka kraft fyrir seinni framlenginguna og komust 5 stigum yfir þegar 17 sekúndur voru eftir. Slaughter minnkaði muninn með þriggja stiga körfu þegar 7 sekúndur voru eftir, en nær komust Pólverjarnir ekki og Finnar fögnuðu sigri. Markkanen var besti maður Finna í dag, með 27 stig, 9 fráköst, 2 stoðsendingar og 2 stolna bolta. Hjá Pólverjum voru Slaughter og Adam Waczynski báðir með 18 stig. Finnar eru því komnir upp að hlið Frakka í riðlinum með 5 stig eftir þrjá leiki.
EM 2017 í Finnlandi Mest lesið Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Íslenski boltinn Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust Körfubolti Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ Íslenski boltinn Felldu og afklæddu styttur af fótboltamönnum Sport Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Körfubolti Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Enski boltinn Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Enski boltinn Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Enski boltinn Sara Björk snýr heim í Hauka Íslenski boltinn Stelpurnar okkar hálfa leið á HM með sigri Fótbolti Fleiri fréttir Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Sjá meira