Brexit-viðræður ganga illa Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 1. september 2017 07:00 David Davis og Michel Barnier fara fyrir samninganefndum Bretlands og ESB. Fréttablaðið/EPA
Enginn markverður árangur hefur náðst í lykilatriðum í samningaviðræðum Bretlands og Evrópusambandsins um útgöngu Breta úr sambandinu. Frá þessu greindi Michel Barnier, sem fer fyrir samninganefnd ESB, í gær. Sagði hann að enn bæri mikið í milli og ekki væri hægt að hefja viðræður um væntanlega fríverslunarsamninga í bráð. David Davis, Brexitmálaráðherra Bretlands, hvatti Evrópusambandið í gær til þess að vera sveigjanlegra í nálgun sinni á viðræðurnar. Sagði hann að að sínu mati hefði einhver árangur náðst í þriðju lotu samningaviðræðna sem fóru fram í Brussel nýverið. Davis og Barnier héldu sameiginlegan blaðamannafund í gær og þótt málflutningur Barniers hafi þótt neikvæður sagði hann að einhver árangur hefði þó náðst í viðræðum um samband Írlands og Norður-Írlands. Barnier sagðist orðinn óþolinmóður. „Ég er ekki reiður, ég er óþolinmóður og ég er staðráðinn í að ná einhverjum árangri í þessum viðræðum,“ sagði hann. „Í júlí viðurkenndi Bretland að ríkið þyrfti að virða skuldbindingar sínar eftir útgöngu en nú hefur Bretland útskýrt þá afstöðu sína að þær skuldbindingar hverfi með síðustu greiðslu til Evrópusambandsins fyrir útgöngu,“ sagði hann enn fremur.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Sjá meira