Húsgögn sem stækka heimilið 27. september 2017 15:15 Ríkey Mortensen Pétursdóttir er markaðsstjóri hjá Hagvís sem fyrst íslenskra fyrirtækja býður upp á rúmstæði sem horfið geta inn í vegg.
Kynning: Hver hefur ekki séð heillandi rúm sem hægt er að láta hverfa inn í vegg á daginn? Nú getur draumur um slíka galdrasmíð ræst og hægt er að nota dýrmætt rými heimilisins í samveru og leik. „Okkur fannst ákall eftir minni íbúðum kalla á lausnir þar sem hvert herbergi nýtist á tvo vegu og hvert húsgagn nýtist tvisvar sinnum,“ segir Ríkey Mortensen Pétursdóttir, markaðsstjóri hjá Hagvís sem býður nú frábæra nýjung á Íslandi sem eru húsgöng fyrir íbúðir þar sem hver fermetri skiptir máli. „Markhópurinn eru stækkandi fjölskyldur sem vilja síður fara út í kostnaðarsama flutninga og fólk sem er að fjárfesta í sinni fyrstu íbúð en nær ekki að kaupa sér nægilega stórt húsnæði. Með þessari lausn getur tveggja herbergja íbúð hæglega verið fyrir fjögurra manna fjölskyldu. Þá er hægt að hafa sófasett með hjónarúmi í stofunni og þar með nýta svefnherbergið, sem er ávallt stærst, fyrir unglingana saman eða haft kojur fyrir börnin, sem fer lítið fyrir. Uppbúin rúm, svo ég tali nú ekki um hjónarúm, taka fjögurra til fimm fermetra gólfpláss, sem betur má nota í leikrými eða dagstofu á daginn. Einnig er þetta snjöll lausn í gestaherbergið eða í tengslum við ferðaþjónustu, því þar má hafa fleiri svefnpláss, miðað við stærð herbergja, án þess að bæta við húsnæði sem er þegar til staðar,“ segir Ríkey.Þegar Hagvís skoðaði sams konar lausnir frá hinum ýmsu framleiðendum heimsins heillaðist Ríkey af hágæða veggrúmum og húsgagnalausnum frá ítalska framleiðandanum WallbedItalia. „WallbedItalia stendur fyrir fallega hönnun og mikil gæði. Stærstu markaðir þeirra eru Singapúr og New York, þar sem fermetrar eru dýrir og miklu skiptir að nýta plássið vel. Húsgögnin eru sérsmíðuð og getur hver viðskiptavinur ráðið efni og áferð á þann veg sem best hentar fyrir viðkomandi. Hönnunarteymið er öflugt og við getum verið í samvinnu um flóknari verk, sé þess óskað,“ útskýrir Ríkey.Hér gefur að líta hjónarúm með rúmgafli sem víkur fyrir þægilegum sófa og fallegri hillueiningu á daginn. MYNDIR/ANTON BRINKÍ verslun Hagvís er hægt að upplifa og sjá hversu vönduð og falleg húsgögnin eru. Hagstæðir samningar Hagvís við WallbedItalia tryggja sama verð á Íslandi og Ítalíu. „Einkunnarorð Hagvís eru gæði, traust og öryggi, og WallbedItalia mætir þeim með sterkum, þrautreyndum og endingargóðum vörum. Ljúflokun og hljóðlátar pumpur auðvelda allar hreyfingar í hverju rúmi fyrir sig og upplifunin er stórkostlega ánægjuleg.“Einstaklingsrúm á nóttunni; skrifborð og nóg gólfpláss á daginn. Hentug lausn fyrir barnaherbergi, gestaherbergi og ferðaþjónustu.Sjálfsali sem léttir undir Hagvís var stofnað 1985 og hefur síðan verið með umboð fyrir aðgengisstýringar utanhúss, girðingar, hlið, bómur og fleira frá Heras í Hollandi. „Í fyrra bættist við umboð fyrir DormaKaba frá Þýskalandi með aðgangsstýringar innanhúss, og getur Hagvís því boðið upp á aðgengisstýringar frá lóðarmörkum að innsta herbergi. Þá erum við einnig með aðgangsstýringar fyrir hótelherbergi frá DormaKaba,“ upplýsir Ríkey. „Vinsælasta varan frá DormaKaba er sjálfsali sem tekur á móti peningum og greiðslukortum. Hún er tilvalin fyrir ferðaþjónustuna, inn á salerni, söfn eða aðra staði þar sem greiða þarf fyrir þjónustuna. Eigandi sjálfsalans getur síðan ráðstafað því sem greitt er í aðgangseyri,“ segir Ríkey og við má bæta að Hagvís þjónustar að sjálfsögðu alla sjálfsala frá DormaKaba.Greinin er unnin í samvinnu með Hagvís, sem er að Fossaleyni 16, 112 Reykjavík. Síminn er 460 1706. Sjá nánar á hagvis.is og á Facebook undir Hagvís Húsgögn.Sjálfsali frá DormaKaba er tilvalinn fyrir söfn, salerni og aðra staði þar sem greiða þarf fyrir þjónustuna.
Hús og heimili Mest lesið Sveitadraumurinn breyttist í martröð Lífið Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Lífið Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Lífið „Þvílík gleði með þennan tíma“ Lífið Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Lífið Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Lífið Hætta við sýningu á The Social Reckoning á Íslandi Bíó og sjónvarp Cage og Banderas í næstu seríu True Detective Bíó og sjónvarp Útilegumaðurinn býður nú meira en ferðavagna og útivistarbúnað Lífið samstarf Árlega greinast 2.146 einstaklingar: Svona nýtist þinn stuðningur Lífið samstarf Fleiri fréttir Ef þú finnur fyrir einkennum, hlustaðu á líkamann Árlega greinast 2.146 einstaklingar: Svona nýtist þinn stuðningur Útilegumaðurinn býður nú meira en ferðavagna og útivistarbúnað Boney M og Herbert Guðmundsson stíga saman á svið á öðruvísi jólatónleikum Svansvottaðar gæðaíbúðir þar sem hugsað er fyrir hverju smáatriði Er bíllinn klár fyrir veturinn? Kíktu á vetrartékklista Bílanausts Nathan fagnaði tímamótum með stærsta viðburði í sögu félagsins Tryggðu þér nýtt rafhjól fyrir 2027 á hagstæðari kjörum Rafha fagnar 90 árum með pönnukökum, afmælistilboðum og fjöri Smáralind breytist í tímavél um helgina Tennis, tónlist og samfélag: Happdrætti Blindrafélagsins skiptir máli Siglingar, safarí og suðrænar strendur meðal spennandi sérferða Húsgagnadagar hafnir í JYSK með allt að 40% afslætti Svona getur lyfjaskammtarinn einfaldað daglegt líf Sprenging í sölu saltvatnspotta á Íslandi Kona fagnar tólf árum í nýjum og glæsilegum Firði Mæðgurnar á bak við Kalkliti mæta í Skútuvog Húðin breytist með aldrinum: Hagkaup leggur aukna áherslu á fræðslu „Það er sannarlega óþarfi að mygla inni“ Nýsköpun frá Icewear fyrir íslenskt veðurfar Sótti kvittunina í ruslið og vann draumaferð til Ástralíu Mikil þátttaka í Íslandsmóti fyrirtækja í Kviss Aldur er ekki hindrun heldur nýtt skeið í lífinu „Ég hef svo margar spurningar fyrir Georg Bjarnfreðarson!“ Tíu algeng mistök í daglegri hárumhirðu „Nú skaltu bara fara í pottinn, Pottakóngur!“ Systur skapa heilsusamfélag fyrir konur á öllum æviskeiðum Próteinskammtur alltaf með í töskunni Þrjátíu árum fagnað með fullu húsi og mikilli matarveislu Prjónaæði grípur um sig meðal Íslendinga Sjá meira