Skoðun

1. des. 2018. Þjóðhátíð eða hnípin þjóð í vanda?

Svanur Kristjánsson skrifar
Þegar stjórnarskrá konungsríkisins Íslands var endurskoðuð árið 1944 var um það einhugur að breyta því einu sem breyta þyrfti af nauðsyn við þau kaflaskil. Við fyrstu hentugleika yrði stjórnarskráin svo tekin til gagngerrar endurskoðunar. Þannig líkti Sveinn Björnsson, fyrsti forseti lýðveldisins, henni við „bætta flík, sem sniðin var upprunalega fyrir annað land, með öðrum viðhorfum, fyrir heilli öld“.“

(Ávarp forseta Íslands, Guðna Th. Jóhannessonar, við setningu Alþingis 12. sept. 2017.)

Í rúm 70 ár hefur Alþingi ekki efnt hátíðleg loforð gefin íslenskri þjóð um endurskoðun stjórnarskrárinnar: Að grunnlög lýðveldisins séu byggð á hugsjónum og stjórnskipulagi lýðræðis og mannréttinda en ekki arfleifð frá stjórnarskrá konungsríkisins Danmerkur – frá 1849! Meirihluta Alþingis virðist meira að segja engu máli skipta að í þjóðar­atkvæðagreiðslu 20. október 2012 samþykktu 67% kjósenda megin­atriði nýrrar stjórnarskrár sem Stjórnlagaráð samdi að frumkvæði Alþingis.

Undanfarið höfum við horft upp á afleiðingar þess að hafa stjórnarskrá og lög sem kveða ekki skýrt á um umboð, vald og ábyrgð handhafa ríkisvaldsins. Hver bar t.d. ábyrgð á skipan dómara í Landsrétt? Meirihluti Alþingis benti á dómsmálaráðherra. Dómsmálaráðherra benti á forseta Íslands. Forseti Íslands gerði sjálfstæða rannsókn og kvað upp þann úrskurð að Alþingi hefði farið að lögum við atkvæðagreiðslu við skipan dómara. Ekki þarf að rekja hér þann sársauka og niðurlægingu sem „uppreist æra“ dæmdra kynferðisafbrotamanna veldur þeim sem síst skyldi. Í ávarpi sínu við setningu Alþingis kom forseti Íslands að kjarna málsins: „Við óbreytt ástand verður ekki unað. Eftir óbreyttu verklagi verður ekki unnið.“

1. desember 2018 verða 100 ár liðin frá því Ísland varð fullvalda ríki. Hver verður þá staða íslenska lýðveldisins? Við Íslendingar eigum einungis tvo valkosti:

l 1. desember 2018 verður sannkallaður þjóðhátíðardagur. Íslendingar hafa samið Samfélagssáttmála og nýja stjórnarskrá. Byggt var á grundvelli frumvarps stjórnlagaráðs en gerðar þær breytingar sem þjóð og þing töldu vera til bóta.

Meirihluti þings og þjóðar samþykkir nýju stjórnarskrána. Ekki var fallist á kröfu sérhagsmunahópa um neitunarvald þeirra varðandi gerð stjórnarskrárinnar.

l 1. desember 2018 verður dagur þjóðlegra umbúða án innihalds. Veislur fyrirfólks eru haldnar og ráðamenn flytja hástemmdar ræður um fáheyrða sigurgöngu íslenskrar þjóðar. Fólkið í landinu lætur sér fátt um finnast enda tekst engum að fela hinn bitra sannleik: Íslendingar eru enn hnípin þjóð í vanda, ófær um byggja upp venjulegt vestrænt lýðræðisríki með Samfélagssáttmála og vandaða stjórnarskrá.




Skoðun

Skoðun

Kona, vertu ekki fyrir!

Elín Björg Jónsdóttir,Halldóra Sigríður Sveinsdóttir,Hrafnhildur Lilja Harðardóttir skrifar

Sjá meira


×