Leiðtogar turnanna í komandi kosningum í Víglínunni Kjartan Kjartansson skrifar 7. október 2017 10:53
Tveir stjórnmálaleiðtogar hafa verið mest í sviðsljósinu í þessari viku og verða þau bæði gestir Heimis Más Péturssonar fréttamanns í Víglínunni á Stöð 2 klukkan 12:20. Þetta eru þau Katrín Jakobsdóttir formaður Vinstri grænna og Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins en athyglin á þeim hefur verið af ólíkum toga. Landsfundur Vinstri grænna hófst í gær þar sem Katrín flutti stefnuræðu flokksins fyrir alþingiskosningarnar eftir þrjár vikur. Flokkurinn hefur verið leiðandi í könnunum allra þeirra sem mæla fylgi flokka undanfarnar vikur og í ræðu sinni í gær hvatti formaðurinn flokksmenn til að halda kraftinum fram að kosningum við að sækja umboð þjóðarinnar til að leiða næstu ríkisstjórn. Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið að tapa fylgi undanfarnar vikur og ef úrslitin verða eitthvað nærri könnunum yrðu þau sögulegt tap fyrir flokkinn. Þá hefur gamall draugur frá hrunárinu 2008 verið vakinn upp að nýju þegar viðskipti Bjarna við Glitni voru sett aftur á dagskrá með úttekt Stundarinnar og The Guardian í gær. Það yrði einnig sögulegt ef Vinstri græn standa uppi sem stærsti flokkurinn á þingi eftir kosningar. Það yrði í fyrsta skipti í sögu lýðveldisins sem flokkur lengst til vinstri í stjórnmálum væri í þeirri stöðu og ljóst að allt annað landslag blasti við á Alþingi en ríkt hefur þar frá lýðveldisstofnun. Víglínan er í opinni dagskrá og beinni útsendingu á Stöð 2 og Vísi klukkan 12:20.
Mest lesið Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Erlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Fleiri fréttir Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Sjá meira