Jicha búinn að leggja skóna á hilluna Henry Birgir Gunnarsson skrifar 16. október 2017 20:00
Stórskyttan magnaða Filip Jicha tilkynnti í stórskemmtilegu myndbandi í dag að hann væri búinn að leggja skóna á hilluna. Meiðsli hafa leikið hann grátt síðustu ár og í sumar varð ljóst að hann myndi ekki halda áfram að spila með Barcelona. Við það tækifæri sagðist hann ætla að leggjast undir feld og íhuga hvað hann ætlaði sér í að gera í framhaldinu. Nú hefur Jicha sætt sig við að hann getur ekki haldið áfram. Því er hann búinn að henda skónum upp í hillu. Jicha er 35 ára gamall og átti magnaðan feril. Hann var valinn besti handboltamaður heims árið 2010. Hann var á mála hjá Lemgo frá 2005 til 2007. Þá fór hann yfir til Kiel þar sem hann spilaði með liðinu sín bestu ár á ferlinum til ársins 2015. Þá fékk hann leyfi til þess að ganga í raðir Barcelona. Jicha grátbað um að fara þar sem hann væri illa staddur fjárhagslega eftir að hafa farið illa út úr fasteignabraski. Hjá Barcelona átti hann að fá betri laun. Eftir nokkuð japl, jaml og fuður fékk hann að fara í sólina á Spáni. Jicha var mikið meiddur þann tíma sem hann spilaði með Barcelona og náði aldrei að sýna sitt rétta andlit hjá félaginu. Myndbandið skemmtilega má sjá hér að neðan.
Handbolti Mest lesið Biðjast afsökunar eftir að keppandi kúkaði á sig Sport Strákarnir á Saga Class en stelpurnar aftar í vélinni Sport „Þróunin á Íslandi sorgleg síðan ég var hér síðast“ Íslenski boltinn Þórsarar höfðu betur í slagnum um Akureyri Handbolti Markvörður KR fór ítrekað fram: „Alveg stjörnubilað að horfa á þetta“ Íslenski boltinn Sjáðu svakalega sleggju Szoboszlai Enski boltinn „Þá mun ég reka mig sjálfur“ Fótbolti Ný stjarna fæðist í Heiðmörk um helgina Sport Mbappé og Vinicius vildu ekki sýna Ceuta stuðning Fótbolti Auknar líkur á að Ísland endi í neðstu deild Fótbolti Fleiri fréttir „Erum að spila fyrir allt Þórs samfélagið“ „Þetta móment á þessum stað á móti KA fyrir mitt félag að sjá fögnuðinn og upplifa hann var bara æðislegt“ Haukar á toppinn og jafntefli á Selfossi Valur bætti vörnina úr síðasta leik Elín Rósa og Díana Dögg unnu stórsigur Þórsarar höfðu betur í slagnum um Akureyri Orri Freyr markahæstur gegn Íslendingaliðinu Ófært frá Eyjum og leiknum frestað Íslendingaliðið vann bikarinn með tvo ólöglega Missti eins árs gamlan son sinn Elín Klara slær í gegn og uppfyllir brátt draum sinn Snorri Steinn valdi elítuhóp úr Olís-deildinni Valur rétti af skelfilega byrjun Íslendingarnir fóru ekki mjúkum höndum um lærisveina Rúnars „Við höfum óbilandi trú á okkur sjálfum “ Uppgjörið: HK - ÍR 18-20 | Tæpur sigur ÍR í Kópavoginum Haukar á flugi Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Fram á toppinn og flautumark á Selfossi Haukur leiddi endurkomu Löwen Danskt stórlið búið að klófesta Elínu Klöru ÍBV samdi við bandarískan hermann „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Uppgjörið: Afturelding - FH 33-33 | Allt jafnt eftir háspennuleik Þórsarar komnir á blað Sextán íslensk mörk í Meistaradeildinni Kanalausir Eyjamenn unnu Suðurlandsslaginn Reynir að skáka og máta „einn efnilegasta þjálfara í heimi“ ÍBV fær bandarískan liðsauka Íslendingaliðin ekki í vandræðum í Meistaradeildinni Sjá meira
„Þetta móment á þessum stað á móti KA fyrir mitt félag að sjá fögnuðinn og upplifa hann var bara æðislegt“