Ákærð fyrir að baula á forsetafrú Simbabve Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 11. nóvember 2017 07:00 Hin ákærðu eru sögð hafa baulað á Grace Mugabe og sagst hata allt sem hún stæði fyrir. Þau eru sögð grafa undan valdi forseta. Nordicphotos/AFP
Fjögur voru í gær ákærð fyrir að baula á Grace Mugabe, forsetafrú Simbabve. Atvikið átti sér stað þegar hún flutti ræðu á fundi ZANU-PF, flokks Roberts Mugabe, forseta og eiginmanns hennar. Í frétt simbabveska blaðsins The Herald segir að hin ákærðu hafi verið handtekin eftir fundinn á laugardag í borginni Bulawayo. Er þeim gefið að sök að hafa reynt að grafa undan valdi forsetans en fjölmiðlar höfðu ekki greint frá því í gær hvort hin ákærðu játuðu sekt. Talið er að fjórmenningarnir séu stuðningsmenn Emmerson Mnangagwa, fyrrverandi varaforseta sem sækist eftir því að taka við forsetaembættinu þegar Mugabe, nú 93 ára, lætur af störfum. Mnangagwa þessi var rekinn fyrr í vikunni og var ástæðan sögð ótrygglyndi. Hann er nú flúinn til Suður-Afríku. Hart er barist um að verða eftirmaður Mugabes og er forsetafrúin ein þeirra sem sækjast eftir stólnum. Greindi BBC frá því í gær að hún hafi raunar verið einn helsti hvatamaður þess að Mnangagwa yrði rekinn. Hefur hún meðal annars sagt að Mnangagwa væri „naðra sem þyrfti að slá í höfuðið“. Nú þegar Mnangagwa hefur verið rekinn þykir Grace Mugabe einna líklegust til að verða næsti forseti Afríkuríkisins.
Birtist í Fréttablaðinu Tengdar fréttir Ótryggur varaforseti Simbabve rekinn Robert Mugabe forseti er sagður hafa tekið ákvörðunina en BBC greinir frá því að hún auki líkurnar á því að eiginkona hans, Grace Mugabe, taki við af forsetanum. 7. nóvember 2017 06:00 Mest lesið Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Fleiri fréttir Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Sjá meira
Ótryggur varaforseti Simbabve rekinn Robert Mugabe forseti er sagður hafa tekið ákvörðunina en BBC greinir frá því að hún auki líkurnar á því að eiginkona hans, Grace Mugabe, taki við af forsetanum. 7. nóvember 2017 06:00