Kynbundin og kynferðisleg áreitni á vinnumarkaði: „Við vitum voðalega lítið um stöðuna“ Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 22. nóvember 2017 12:00 Drífa Snædal, framkvæmdastjóri Starfsgreinasamband Íslands. Vísir/GVA „
Ég held að í lang flestum tilfellum er það þolandinn sem þarf að taka skellinn eða hætta,“ segir Drífa Snædal framkvæmdastjóri Starfsgreinasamband Íslands í samtali við Vísi. Í næstu viku heldur Drífa erindi um kynbundna og kynferðislega áreitni á vinnumarkaðinum og kynbundin launamun. Erindið er hluti af dagskránni hjá 16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi, sem fer af stað á laugardag. Um er að ræða alþjóðlegt átak sem felst í að draga kynbundið ofbeldi fram í dagsljósið sem mannréttindabrot. Upphafsdagurinn 25. nóvember er alþjóðlegur baráttudagur gegn ofbeldi gegn konum. Lokadagurinn 10. desember er alþjóðlegi mannréttindadagurinn. Dagsetningarnar tengja saman á táknrænan hátt ofbeldi og mannréttindi. Skylda að vera með áætlun„Við höfum séð hjá stéttarfélögum að þegar svona mál koma inn á borð til okkar að þá er í rauninni fokið í flest skjól. Þannig að það sem þarf að gerast er að vinnustaðir bregðist skjótar við, gefi skýr skilaboð um að þetta verði ekki liðið, hvert á að beina sér ef þú hefur orði fyrir áreitni sjálf eða orðið vitni af því, og ferli fer þá í gang.“ Að hennar mati vinnustaðir á Íslandi almennt ekki með tilbúna viðbragðsáætlun sem fer í gang þegar upp koma mál varðandi kynbundið ofbeldi á vinnustaðnum. „Í reglugerð sem var gefin út árið 2015, þá eiga vinnustaðir að vera með svona öryggisáætlanir. Og öryggisáætlunin á að fela í sér forvarnir og vernd gegn ofbeldi og áreitni. Þannig að það er beinlínis skylda atvinnurekenda að vera með svona áætlanir.“ Starfsgreinasambandið er með eigin viðbragðsáætlanir, sem er hluti af því ferli að vera betur í stakk búin til þess að leiðbeina vinnustöðum og starfsfólki þegar svona mál koma upp.Alþýðusamband Íslands, Bandalag Háskólamanna, BSRB og Kennarasamband Íslands kölluðu í dag eftir því að atvinnurekendur og stjórnvöld axli ábyrgð og stórefli aðgerðir til að útrýma kynferðislegri áreitni og ofbeldi á vinnustöðum.Vísir/GettyÞjónninn er ekki á matseðlinum„Almennt er þetta á byrjunarstigi á Íslandi,“ segir Drífa sem telur að við séum á eftir öðrum Norðurlöndum í þessum málum. Hún segir áreitni og kynbundið ofbeldi sé verra í þjónustugeiranum en í öðrum starfsstéttum. „Við gerðum könnun árið 2015 vegna fólks í þjónustugeiranum og þá kemur í ljós að það er víða pottur brotinn, sérstaklega þar. Það hefur verið skilgreint að fólk í þeim stéttum er sérstaklega berskjaldað því að þar er óreglulegur vinnutími og áfengi um hönd og fleira,“ segir Drífa. Drífa fær inn á borð hjá sér mál tengd áreitni gegn bæði konum og körlum. „Það eru dæmi um bæði en hins vegar sýna okkar kannanir það að konur fara verr út úr því. Þegar konur verða fyrir áreiti er það frekar þannig að öryggi þeirra sem stendur ógn af því. Þannig að þetta er kynbundið, hvaða áhrif þetta hefur.“ Á fimmtudag fer af stað átak á öllum Norðurlöndunum sem ber heitið: „Við erum ekki á matseðlinum.“ Starfsgreinasambandið tekur þátt í þessu en farið er af stað með þetta átak vegna jólahátíðarinnar með tilheyrandi jólahlaðborðum. „Þó að fólk sé í þjónustuhlutverki þá ber að virða mörkin.“Vinnuveitendur axli ábyrgðHún segir að það hafi komið á óvart hversu lítið til er að rannsóknum á þessu hér á landi. „Við vitum voðalega lítið um stöðuna á vinnumarkaði. Það sem mig hefur oft dreymt um er að skoða tengsl kynferðislegrar áreitni á vinnustöðum og launamun kynjanna. Hvaða áhrif þetta raunverulega hefur á stöðu fólks á vinnumarkaði, þegar það verður fyrir áreitni eða ofbeldi á vinnustöðum. Hvort það komi niður á framfærslumöguleikum, hvort það komi niður á stöðuveitingum og svo framvegis. Það vantar rannsóknir, og mætti gera betur í rannsóknum á vinnumarkaði yfir höfuð. Ég held að umræðan núna hjálpi mjög mikið til. Bæði að vinnustaðir og vinnuveitendur fara að axla þá ábyrgð sem þeir eiga að taka og eins að við förum að leita aukinnar þekkingar.“ Drífa segist fagna fréttum um að rannsaka eigi valdaójafnvægi og kynferðisofbeldi innan leiklistarinnar hér á landi og telur að almennt sé tilefni til þess að rannsaka þetta víðar í samfélaginu.
Tengdar fréttir „Langt í að kynferðislegri áreitni og ofbeldi verði útrýmt á vinnumarkaði“ Alþýðusamband Íslands, Bandalag Háskólamanna, BSRB og Kennarasamband Íslands kalla eftir því að atvinnurekendur og stjórnvöld axli ábyrgð og stórefli aðgerðir til að útrýma kynferðislegri áreitni og ofbeldi á vinnustöðum. 22. nóvember 2017 10:37 Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Fleiri fréttir Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Sjá meira
„Langt í að kynferðislegri áreitni og ofbeldi verði útrýmt á vinnumarkaði“ Alþýðusamband Íslands, Bandalag Háskólamanna, BSRB og Kennarasamband Íslands kalla eftir því að atvinnurekendur og stjórnvöld axli ábyrgð og stórefli aðgerðir til að útrýma kynferðislegri áreitni og ofbeldi á vinnustöðum. 22. nóvember 2017 10:37